Betra verð, Krít
Draumaeyjan, frábær verð
Myndagallerí
Flogið með Icelandair til Krítar!
Upplifðu gríska menningu eins og hún gerist best.
Verðdæmi hér til hliðar.
Hér finnur þú yndislegan mat, hvítar strendur, sól og skemmtilega menningu. Láttu drauminn rætast og skelltu þér í frí til Krítar.

Dásamlega gríska eyjan Krít státar af sólgylltum ströndum og best er að finna rólegan stað, leggjast og hræra hvorki legg né lið. Þeir sem hafa ekki eirð í sér fyrir slíkt letilíf og geta stundað sjósund, köfun og allt hugsanlegt sjósport. Einnig eru frábærar gönguleiðir í nágrenninu og góðar hjólaleiðir.
Verslun
Á mörkuðunum í Chania eru glæsilegir skartgripir, leðurtöskur, skór, belti og handunnir leirmunir. Ekki er mikið um fatakeðjur á eyjunni en þó eru þar H&M, Bershka, Zara, Stradivarius, Pull and Bear og fleiri skemmtilegar og hagstæðar verslanir.

Sagan
Saga Krítar er auðug og nær 4.000 ár aftur í tímann. Þar finnast rómverskar rústir, mínóískar hallir og fagrar býsanskar kirkjur. Vinsælast er þó að heimsækja eyjuna frægu og fögru, Santorini. Einnig hefur færst í vöxt að gestir eyjunnar læri matreiðslu af Krítverjum.

Ströndin
Við ströndina teygir gylltur sandurinn anga sína marga kílómetra. Hótel, barir, verslanir og veitingastaðir raða sér eftir strandlengjunni, hver öðrum ljúffengari. Það er skylda að smakka sem mest á Krít og gaman að fara út að borða með fjölskylduna. Börnin fá oft ávexti eða ís í eftirrétt í boði hússins og hið gríska Raki er alveg dásemd eftir mat.

Chania
Flogið er til Chania, önnur stærsta borg Krítar. Hún var höfuðborg eyjarinnar til forna.
Miðbærinn er þægilegur yfirferðar og má segja að miðjan sé Feneyska höfnin. Þar standa einnig veitingastaðir í röðum og notalegt að setjast niður og horfa á mannlífið.
Frá höfninni liggja litlar göngugötur þar sem auðvelt er að drekka í sig gríska stemmningu. Í búðunum er t.d. hægt að kaupa ólívuolíu sem hvergi betri en á Krít og ýmsar vörur tengdar henni, eins og snyrtivörur.
Snotur gallerí, kaffihús og verslanir eru á hverju götuhorni.

Platanias
Ef stefnan er tekin vestur frá Chania er endað í Platanias. Þetta er vinsæll ferðamannabær sem iðar af lífi allan daginn og langt fram á kvöld. Svæðið er 14 km frá Chania og strætó gengur meðfram ströndinni. Byggð er á milli staðanna, nánast samfelld með veitingastöðum, verslunum, börum og kaffihúsum. Ferðaþjónustan blómstrar og sólþyrstir ferðalangar fá allt frá sandölum og ermalausum bol upp í vandaða minjagripi úr smiðju heimamanna.
Rethymnon
Þriðji stærsti bærinn á Krít er Rethymnon. Hann er í um klukkutíma akstri frá flugvelli í Chania. Rethymnon státar líka af Feneyskri höfn, göngugötum og úrval veitingastaða er við höfnina og meðfram ströndinni. Kosturinn við Rethymnon er einmitt að í bænum er breið og fín sandströnd.

Á Krít mætast gamli og nýi tíminn á heillandi máta og líkt og að ganga inn í annan heim að rölta um þröngar steinilagðar götur bæjanna. Ys og þys borgarlífsins hverfur og sjarmi liðinna tíma tekur yfir. Hér er auðvelt að gleyma sér tímunum saman við að skoða minjar frá því að eyjan laut yfirráðum Feneyinga og síðar Tyrkja.
Ferðir verða í boði með íslenskum fararstjóra (sjá nánar undir skoðunarferðir).
Á eigin vegum:
Vatnsleikjagarðurinn Limnoupolis
Rétt fyrir utan Chania er nýlegur stór vatnsleikjagarður, Limnoupolis, með leiktækjum, rennibrautum, klifurvegg og veitingastað. Góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Takið með ykkur sundföt, handklæði, sólarvörur og hatta.
Góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna
Köfun, Hjólreiðaferðir & Jeppasafarí - farþegar hafa kost á því að fara í köfun eða á köfunarnámskeið. Einnig er hægt að fara í hjólreiðaferðir. Hægt er að skoða bæklinga um þessa þjónustu í fararstjóramöppunni á hótelum. Fararstjóri aðstoðar við pöntun, ef þess er óskað.
Golden Fun Park - Stærsti skemmtigarður á vestur Krít með alls kyns afþreyingu eins og keilu, minigolf, billiard, inni og úti leikvöllum.
Mega Place - Þessi staður er nálægt Chania og býður einnig uppá ýmsa afþreyingu eins og keilu, billiard, leikvelli, tölvuleiki. Þaðan er flott útsýni yfir Souda bay og White mountains.
Fun Trains - Lest sem fer útsýnisferð og hentar börnum og fullorðnum á öllum aldri. Á vefsíðunni er hægt að skoða skemmtilegt myndband úr ferðunum.
Í Chania og Platanias er fararstjóri á vegum Vita, en þeir sem kjósa að dvelja í Rethymnon eru á eigin vegum, en með þjónustunúmer fararstjóra.
-
Veðrið
-
Flugtími
Kef
CR
5
Morgunflug
-
Gjaldmiðill
€Evra
Gengi