Altis Grand
Vefsíða hótels
Heillandi hótel í miðborg Lissabon í göngufæri við verslunargötuna Avenida Libertade og fjörugt mannlíf.
Á hótelinu eru 300 rúmgóð herbergi (þar á meðal 12 svítur), nýlega endurnýjuð frá grunni, búin nýjum húsgögnum úr íbenviði og ryðfríu stáli. Á öllum herbergjum er sjónvarp, öryggishólf, netaðgangur, smábar, sími, hárþurrka og loftkæling.
Stutt er frá hótelinu í sögufræg hverfi borgarinnar eins og Bairro Alto og Princípe Real. Þar er að finna lífleg veitingahús, bari, listasöfn, verslanir og staði þar sem Fado-tónlist er flutt.
Á Altis-hótelinu eru tveir veitingastaðir. Annar þeirra er D. Fernando-grill á 12. hæð þar sem hægt er að gæða sér á rammportúgölskum mat og virða fyrir sér stórkostlegt útsýni um leið. Hinn heitir Rendez Vouz Café sem býður upp á ýmiss konar mat og léttar veitingar hvenær sem er dagsins. Einnig eru tveir barir á hótelinu.
Hótelið hýsir 18 vel búna ráðstefnu- og fundarsali sem rúma allt frá 8 til 750 manns. Upphituð innisundlaug og líkamsræktarsalur standa gestum til boða og einnig er hægt að fá ýmiss konar dekurmeðferð.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 7 km
- Miðbær: Í miðbænum
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging: Þráðlaus nettenging án endurgjalds er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum
- Sundlaug: Innisundlaug
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Minibar
- Hárþurrka
Fæði
- Morgunverður