fbpx Aquasol, Palmanova | Vita

Aquasol, Palmanova
3 stars

Vefsíða hótels

Aquasol er einfalt og fjölskylduvænt íbúðahótel á Palmanova ströndinni. 

Á hótelinu eru 132 íbúðir, ýmist með einu, tveimur eða þremur svefnherbergjum sem rúma mest 8 einstaklinga. Íbúðirnar eru snyrtilegar og innréttaðar á látlausan hátt. Baðherbergin eru öll með "walk inn" sturtu. Ókeypis þráðlaus nettenging er á öllum svæðum hótelsins. Athugið að ekki er lyfta á hótelinu.

Á veitingastaðnum Citrus er hægt er að fá bæði morgun- og kvöldverð af hlaðborði. Hægt er að velja af sérstöku hlaðborði fyrir börnin. Tveir barir eru á hótelinu, inni er Aquasol barinn þar sem hægt er að svala sér á góðum kokteilum eða bara fá sér einn kaldan en á útisvæðinu er sundlaugarbarinn Fresco þar sem hægt er fá sér drykki og létt snarl. Krakkaklúbbur er á hótelinu með ýmsar skemmtanir fyrir 4-12 ára, s.s. vatnaleiki, ýmis konar barnasýningar og mini disco svo eitthvað sé nefnt.

 

Fjarlægðir

  • Strönd: 500 metrar
  • Flugvöllur: 30 mín
  • Veitingastaðir: Allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Íbúðir
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Íbúðir

Fæði

  • Hálft fæði
  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun