fbpx Armin, gott superior þriggja stjörnu hótel.

Armin
3 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Armin er gott þriggja stjörnu „Superior"  hótel þar sem eigendur hótelsins,  Armin fjölskyldan, hugsa af einstakri natni um gesti sína.  Hótelið er við aðalgötuna í Selva og um 400 metrar eru að Ciampinoi kláfnum, sem gengur upp á skíðasvæðið í Selva.

Boðið er upp á litla hótelskutlu að skíðalyftunum og geta gestir pantað far með bílnum.

Tveggja manna herbergi eru:
Comfort, sem eru 23-26m2 og taka 2-3
Superior" sem eru 30-40m2 og taka 2-4.
Einnig er hægt að sérpanta herbergi sem rúma allt að 4-5.

Herbergin eru öll með  síma, sjónvarpi, öryggishólfi og þráðlausri nettengingu. Baðherbergi eru falleg ýmist með sturtu eða baði og hárþurrku.
Comfort herbergin eru með svölum en Superior herbergin eru svalalaus.

Einbýli eru örfá og ekki með svölum.

Á hótelinu er bar og maturinn er fyrsta flokks. Hótelgestir á Armin koma þangað aftur og aftur, ekki síst til að borða hinn ljúffenga mat sem á borðum er og njóta hinnar persónulegrar þjónustu, sem er aðalsmerki hótelsins.

Fín heilsulind er á hótelinu með gufubaði, heitum potti og notalegu hvíldarherbergi. Hún er innifalin en greiða þarf fyrir afnot af heita pottinum.
Skíðageymsla er á hótelinu. 

*Ath ferðamannaskattur í Selva er ekki innifalinn í verði ferðarinnar, Hann greiðist á hóteli við brottför. Sjá nánar undir hagnýtar upplýsingar. 

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 192 km
  • Frá miðbæ: Í miðbænum
  • Frá skíðalyftu: 400 m
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Nettenging: Þráðlaus nettenging er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum.
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Upphituð skíðageymsla

Vistarverur

  • Herbergi: Comfort sem eru 23-26m2 og taka 2-3 og Superior sem eru 30-40m2 og taka 2-4
  • Minibar
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun