fbpx Barceló Margaritas, Playa del Inglés | Vita

Barceló Margaritas, Playa del Inglés
4 stars

Vefsíða hótels

Barceló Margaritas hótelið var allt enduruppgert árið 2022. Hótelið er vel staðsett á ensku ströndinni og býður upp á tvær útisundlaugar barnasundlaug, líkamsræktarstöð og Crossfit undir berum himni með einkaþjálfara. Boðið er uppá skemmtidagskrá á daginn og á kvöldin. Einnig er í boði ókeypis strætó til Maspalomas- og Playa del Inglés strandanna. Maspalomas golfvöllurinn er 2,2 km frá hótelinu og Playa del Ingles ströndin er í 1,9 km fjarlægð.

Á hótelinu eru samtals 322 herbergi, bæði hjónaherbergi og fjölskylduherbergi, innréttuð með einföldum en fallegum innréttingum. Öll gistirýmin eru með loftkælingu og gervihnattasjónvarpi.

Hótelið er með hlaðborðsveitingastað sem framreiðir alþjóðlegan mat. Hægt er að velja um hálft fæði, allt innifalið eða allt innifalið Plús ef gist er í tvíbýli eða fjölskylduherbergi Deluxe.
Hálft fæði innifelur morgunverð og kvöldverð.
Allt innifalið innifelur morgunverð, hádegisverð og kvöldverð af hlaðborði, alla drykki á opnunartíma og snakk.
Allt innifalið Plús innifelur eftirfarandi umfram allt innifalið. Áfylltur minibar á herbergi (en áfylling kostar aukalega), Kaffi/Te aðstöðu á herbergi, náttsloppar, inniskór og frí sundlaugar handklæði, sérstakt svæði í matsal, nýkreistur appelsínusafi og espresso kaffi með morgunverðinum, fríir drykkir allan sólarhringinn, einn hádegisverður eða kvöldverður á A la Carte veitingastaðnum ef gist er 5 nætur eða meira (þarf að panta borð), hádegisverðir A la Carte á snakkbarnum án gjalds, flýti innritun eða útskráning, ein upplifun í boði hótelsins (þarf að spyrja um í móttöku).

Ef gist er í Junior svítu eða Junior svítu Deluxe eru þær staðsettar á svokölluðu Royal Level svæði hótelsins. Þar fá gestir aðgengi að sérstöku Royal Level Lounge svæði, aðgengi að sérstöku sólbaðs og sundlaugarsvæði, aðgengi að öðrum nýrri matsal sem er eingöngu fyrir þá sem gista á Royal Level svæðinu, kaffiaðstaða er á svítunum og náttsloppar og inniskór. Þeir sem gista á Royal Level svæðinu geta valið um hálft fæði eða allt innifalið. Athugið að Royal Level svæðið er eingöngu fyrir fullorðna eða 16 ára og eldri.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 30 km
  • Frá strönd: 1,9 km
  • Veitingastaðir: Allt um kring

Aðstaða

  • Sturta
  • Sundlaug
  • Barnasundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Allt innifalið, Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun