fbpx Beverly Park, Enska ströndin. stutt frá strönd.

Beverly Park, Playa del Inglés - San Agustin
3 stars

Vefsíða hótels

Hér eru allar helstu upplýsingar um sóttvarnir og ráðstafanir sem gripið hefur verið til á Beverly Park:

Beverly Park hótelið er á frábærum stað, 100 metra frá ströndinni. Það tilheyrir San Agustin en 15 - 20 mínútur gangur er á Ensku ströndina og í miðbæinn með verslanir, veitingastaði og iðandi mannlíf. 

Í hótelinu eru 469 herbergi sem taka frá tveimur og upp í fjóra einstaklinga. Herbergin eru einföld, ekki stór og komin nokkuð til ára sinna. Allar vistarverur hafa síma, sjónvarp með gervihnattarásum og svalir. Á herbergjum er ekki ísskápur en starfsfólk aðstoðar gesti við að taka á leigu ísskáp ef þeir kjósa svo. Loftkæling er yfir sumarmánuði. Á baðherbergjum er hárþurrka og baðvörur. Þráðlaust netsamband er í sameiginlegum rýmum á hótelinu. Öryggishólf eru í gestamóttöku.

Hlaðborðsveitingastaður er í hótelinu og þar fæst úrval alþjóðlegra rétta bæði í hádeginu og á kvöldin. Við sundlaugina er opinn snarlbar fram eftir degi. Þar er einnig hægt að næla sér í ljúfan drykk til að kæla sig niður – eða hita sig upp fyrir kvöldið. Á setustofubarnum er lifandi tónlist fram eftir kvöldi.

Fimm sundlaugar eru í hótelgarðinum, þrjár fyrir fullorðna og tvær busllaugar fyrir börnin. Hótelgarðurinn er gróinn og þar eru sólbekkir og sólhlífar. Krakkaklúbbur er starfræktur við hótelið og sérstakt leiksvæði er fyrir börnin.

Í heilsulindinni eru tveir nuddpottar og gufubað og boðið er upp á nuddmeðferðir. Einnig er hárgreiðslu- og snyrtistofa í hótelinu. 

Engum þarf að leiðast á Hotel Beverly Park, starfsfólk sér um skemmtidagskrá á daginn og kvöldin. Auk þess er tennisvöllur við hótelið og minigolfvöllur og í leikjaherbergi er billjarð- og borðtennisborð.

Hótelið er aðeins 100 metra frá ströndinni og því stutt að fara fyrir þá sem kjósa frekar að leggjast í sandinn en við sundlaugarbakkann. Verslunarmiðstöð er í nokkurra mínútna fjarlægð og kortersgangur að strönd með veitingastöðum, verslunum og fjörugu mannlífi. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 30 km
  • Miðbær: 15 min
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni (enska ströndin)
  • Strönd: 100 metrar

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Nettenging: Í sameiginlegum rýmum

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Öryggishólf: Í gestamóttöku

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun