fbpx Briig | Vita

Briig
4 stars

Vefsíða hótels

Hótel Briig er nútímalega hannað fjögurra stjörnu hótel, vel staðsett rétt hjá ströndinni Bacvice og er gamli bærinn í göngufjarlægð. 

Á hótelinu er fyrirmyndaraðstaða en þar má finna útisundlaug á þaki hótelsins, ásamt bar og verönd, en þar geta hótelgestir notið sólargeislanna með fallegt útsýni allt um kring. Veitingarstað og bar er einnig að finna á jarðhæð hótelsins, ásamt móttöku sem er opin allan sólarhringinn, líkamsræktaraðstöðu og heilsulind svo eitthvað sé nefnt. 

Öll herbergin eru smekklega innréttuð og hafa að geyma öll þau þægindi sem ættu að gera dvölina ánægjulega, eins og  loftkælingu, sjónvarp, síma, te eða kaffivél, minibar og öryggishólf.  Á baðherbergjum er baðkar eða sturta, hárþurrka og helstu snyrtivörur.  

Frábærlega vel staðsett hótel með veitingastaði og verslanir í næsta nágrenni. 

Fjarlægðir

  • Miðbær: Í göngufjarlægð
  • Flugvöllur: 23,7 km.
  • Veitingastaðir: Allt um kring
  • Strönd: 100 m. Bacvice ströndin

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun