fbpx Bungalows Coloradamar, Playa Blanca | Vita

Bungalows Coloradamar, Playa Blanca
3 stars

Vefsíða hótels

Einstaklega falleg smáhúsasamstæða í Playa Blanca. Nokkrar mínútur niður að strönd og smábátahöfninni í miðbænum. Korters göngutúr að hinum gullfallegu Papagayo-ströndum.

Smáhúsin eru um 70 fermetrar að stærð, ætluð allt að fjórum einstaklingum. Húsin eru björt og fallega innréttuð í Kanaríeyjastíl, húsgögn eru úr basti með bláu og hvítu áklæði. Flísar eru á gólfum. Tvö svefnherbergi eru í húsunum, annað stórt, með stóru rúmi, stólum og borði, á baðherbergi er baðker með sturtu, snyrtivörum og handklæðum. Í minna herberginu eru tvö rúm og sérbaðherbergi með sturtu. Loftkæling og flatskjársjónvarp með gervihnattarásum er alls staðar. Í stofu er sófi, stólar og borð og eldhúskrókur er með öllu sem til þarf, ísskáp, örbylgjuofni, kaffivél og hraðsuðukatli, keramikhelluborði og viftu. Þráðlaus nettenging er ókeypis en öryggishólf sem rúmar fartölvu er gegn gjaldi.

Við öll húsin er stór verönd með sólbekkjum, borði og stólum. Hægt er að leigja pullur fyrir sólbekkina, baðhandklæði fyrir ströndina og baðsloppa. 
Úr Sea View Plus húsum er sjávarsýn, pullur fylgja með sólbekkjum og baðsloppar. Sjónvarpið er 40 tommu snjallsjónvarp og öryggishólf er ókeypis og upphitun. Grill fylgir og ólífuolía, edik og salt til matargerðar. Það sama fylgir Whirlpool bath Plus húsum nema að þar er einnig nuddpottur á veröndinni. Bali Plus húsin eru við sundlaugina og þeim fylgir einka balíbeddi við laugina.

Á veitingastaðnum La Bocayna er morgunverður í boði og kvöldverður. Athugið að karlpeningurinn er beðinn að skipta úr stuttbuxum í síðar fyrir kvöldverðinn.
Hótelgarðurinn er fallega hannaður og stílhreinn, með sundlaug fyrir fullorðna og busllaug fyrir börnin. Þar er einnig nuddpottur þar sem gott er að láta þreytuna líða úr sér eftir leik á tennisvellinum eða tuðruspark á litla fótboltavellinum við hótelið.   
Í gestamóttökunni er bíla- og hjólaleiga. Athugið að gæludýr eru leyfð í hótelgarðinum, að sundlaugarsvæðinu undanteknu.

Samstæðan er á frábærum stað, 100 metrar í matvöruverslanir og nokkrar mínútur niður á strönd. Vatnasport af öllu tagi er hægt að stunda á svæðinu og korters gangur niður að hinum undurfögru Papagayo-ströndum.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 30 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni
  • Strönd: Nokkrar mínútur niður að strönd

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Íbúðir
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun