fbpx Catalonia Granada | Vita

Catalonia Granada
4 stars

Vefsíða hótels

Nútímalegt og gott hótel á frábærum stað í hjarta borgarinnar, nokkrar mínútur frá gamla borgarhlutanum, opnað í ársbyrjun 2018. Heilsulind og þakverönd með sundlaug og bar. Verslanir og veitingastaðir og stutt í lestarstöðina og aðrar almenningssamgöngur.

Í hótelinu eru 153 fallega innréttaðar vistarverur sem skiptast í herbergi sem ætluð eru frá einum upp í þrjá fullorðna og tveggja manna svítur. Innréttingar eru einstaklega stílhreinar og nútímalegar, í dempuðum og fallegum litum. Parkett í millibrúnum við er á gólfum. Alls staðar er loftkæling og upphitun, sími, snjallsjónvarp, öryggishólf sem rúmar fartölvu, hraðsuðuketill og smábar. Þráðlaus nettenging er ókeypis. Á baðherbergjum er ýmist góð sturta eða baðker, hárþurrka og baðvörur af bestu gerð.

Morgunverðarhlaðborð með úrvali heitra og kaldra rétta úr ferskasta mögulega hráefni er í boði alla daga í veitingasal. Setustofubarinn er glæsilegur og þar fást tapasréttir og aðrir léttir réttir frá ýmsum heimshornum auk ljúffens léttvíns og kokteila af öllum gerðum.  
Á þakveröndinni er sundlaug og bar og er óhætt að mæla með að slaka þar á og njóta útsýnisins yfir borgina og Sierra Nevada fjallgarðinn.

Í heilsulindinni er lítil innilaug með sturtu- og nuddhausum. Umhverfis laugina eru hvíldarbekkir og hægt er að panta nudd og alls kyns líkamsmeðferðir. Líkamsræktaraðstaðan er hin fínasta með nýjustu tækjum.
Móttakan er að sjálfsögðu opin allan sólarhringinn og þar er farangursgeymsla, bílaleiga og þvotta- og þurrhreinsiþjónusta.

Glæsilegt hótel sem opnað var í byrjun árs 2018. Staðsetningin er frábær, í rólegri götu í hjarta borgarinnar, en þó er aðeins 5 mínútna gangur í iðandi mannlífið í gamla bæjarhlutanum. Veitingastaðir og verslanir eru í götunum í kring og örstutt er í lestarstöðina og aðrar almenningssamgöngur.

Fjarlægðir

  • Miðbær: Nokkrar min frá gamla borgarhlutanum
  • Veitingastaðir: Í götunum í kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Loftkæling: og upphitun

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun