fbpx Celebrity Reflection | Vita

Celebrity Reflection
5 stars

Vefsíða hótels

Eitt glæsilegasta farþegaskipið í flota Celebrity Cruises sem fór í sína jómfrúarferð árið 2012.

Skipið er  12 hæðir, 126.000 lestir, rúmlega  300 metrar á lengd og með rými fyrir 3046 gesti auk áhafnar.

Lido er næst efsta þilfarið með skokkbraut , setustofum, veitingastað og bar, allt með gríðarmiklu útsýni til allra átta. Resort þilfarið er með sundlaugum, sundlaugarbar, sólbekkjum og heilsulindinni Aquaspa. Entertainment þilfarið er með veitingastaði, listmunasölur, kaffihús, ísbúðir o.fl. og á  Promenade þilfarinu eru litlar verslanir, vínbarir og spilavíti. Veitingasalir eru glæsilegir og um allt skip eru barir, hver með sínu þema.

Rúmgóðir klefa með öllum þægindum og  herbergisþjónusta er opin allan sólarhringinn.

Ótal afþreyingarmöguleikar, að ógleymdri fyrsta flokks þjónustunni sem fæst um borð, gera siglingu með Celebrity Reflection ógleymanlega.

Fjarlægðir

  • Veitingastaðir: Um borð

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt

Vistarverur

  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Verönd/svalir: Ef keyptur er klefi með svölum

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun