fbpx Cicerone Hotel. Gott hótel í Róm. Prati hverfið. Nálægt Péturskirkju. Róm

Cicerone
4 stars

Vefsíða hótels
Gott einfalt hótel miðsvæðis í Róm, á góðum stað í Prati hverfinu, í göngufæri við Péturskirkjuna og frábærar verslanirÁ herbergjum eru loftkæling, sjónvarp, þráðlaust internet, minibar, öryggishólf og hárþurrka. Á hótelinu er sérlega góður veitingastaður sem býður ítalska og evrópska rétti sem koma munnvatninu á hreyfingu og mikið úrval vína til að njóta með matnum. Innifalið vel útlátið morgunverðarhlaðborð. Píanóbar á kvöldin. Lítil en ágætlega búin líkamsrækt.Cicerone er í hinu fína Prati hverfi miðsvæðis í Róm, en þar er að finna margar flottar verslanir. Fjölmarga áhugaverða staði er að finna í næsta nágrenni, meðal annars eru tæpir 2 km í Trevi brunninn, Spænsku þrepin og Navóna torgið, ríflega 2 km í Péturkirkjuna, tæpir 3 km í Rómartorgið (Forum Romanum) og hálfur fjórði km í hringleikahúsið Colosseum.
Í næsta nágrenni er fjöldi frábærra veitingastaða og einfalt að skjótast í verslunarhverfið Via del Corso.

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun