fbpx Crowne Plaza – Mall of America, Minneapolis | Vita

Crowne Plaza – Mall of America, Minneapolis
3 stars

Vefsíða hótels

Flott staðsetning, góður nætursvefn og rólegheit einkenna þetta skemmtilega hóteli. Hér er um að ræða góðan kost, bæði fyrir þá sem ætla að versla og þá sem vilja skoða sig um í borginni.

Á hótelinu eru 430 herbergi sem skiptast í tveggja til fjögurra manna herbergi og svítur. Herbergin eru snyrtileg og klassísk með hlýlegri lýsingu og fallegum innanstokksmunum. Hver hæð er með sinni eigin hönnun sem er undir innblæstri frá flugvélum. Veggir eru ljósmálaðir eða veggfóðraðir og teppi er á gólfum. Í öllum herbergjum er frítt internet, flatskjársjónvarp með miklum fjölda af stöðvum, teketill, örbylgjuofn, sími og ísskápur. Einnig er vinnuaðstaða inni á herbergjunum. Á baðherbergjum eru sturta og bað, hárblásari og helstu snyrtivörur. Sérstaða hótelsins felst meðal annars í því að lögð er áhersla á að gestir fái góðan svefn svo öllum herbergjum fylgja sérstakar svefnvörur. Rúmdýnur og lín eru jafnframt í góðum gæðum.

Á hótelinu er veitingastaðurinn AiRECraft Grill sem býður upp á morgunverð, fjölbreytta rétti og bragðgóða og svalandi drykki svo það þarf ekki að fara langt frá hótelinu til að njóta góðrar matargerðar. Herbergisþjónusta er einnig í boði með öllum þeim réttum sem eru á matseðli veitingastaðarins. Einnig er rekin lítil verslun á hótelinu með matvæli og nauðsynjavörur. 

Eftir skemmtilegan dag í Minneapolis er gott að skella sér í stóra saltvatnslaugina sem staðsett er á hótelinu. Þar er hægt að synda, leika sér, slaka á í saltvatnspotti eða kíkja í sánu. Á hótelinu er einnig góð líkamsræktarstöð sem er vel búin öllum helstu tækjum. Gestir geta farið í ræktina hvenær sólarhringsins sem er. 

Crowne Plaza er staðsett í um 5 mínútna fjarlægð frá Mall of America og einungis í um 2 mínútna fjarlægð frá flugvellinum. Hótelið býður upp á að skutla og sækja á flugvöllinn hvenær sem er sólarhringsins og einnig eru skutlur sem fara með gesti í Mall of America. Aðeins tekur nokkrar mínútur að ganga að næstu neðanjarðarlestarstöð en þaðan er auðvelt að komast hvert sem er til að skoða sig um.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 9 km
  • Miðbær: 30 km Minneapolis miðbær
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun