Dunes Platja, Can Picafort
Vefsíða hótels
Glæsilegt fjögurra stjörnu íbúðahótel staðsett rétt hjá ströndinni í Can Picafort og í stuttri göngufjarlægð frá miðbænum.
Á Dunes Platja er góð aðstaða og má þar nefna móttaka sem er opin allan sólarhringinn, veitingastaður, bar og heilsulind þar sem m.a. er innisundlaug, nuddpottur og líkamsræktaraðstaða. Úti í garði er svo útisundlaug, sólbekkir, bar og barnaleiksvæði.
Á hótelinu eru þrjár hæðir og lögð er áhersla á að veita persónulega þjónustu en þarna eru aðeins 47 íbúðir. Allar eru þær með einu svefnherbergi, stofu, eldhúsaðstöðu, fullbúnu baðherbergi og svölum. Þarna er einnig loftkæling, öryggishólf (gegn gjaldi), sími, sjónvarp, hárþurrka, lítill kælir, þráðlaust internet, örbylgjuofn og herbergisþjónusta. Góð aðstaða er á hótelinu fyrir fatlaða og hægt er að panta sérútbúnar íbúðir.
Hægt er að velja um að vera með morgunmat inniaflið eða hálft fæði sem samanstendur af morgunmat og kvöldverði sem reiddur er fram af hlaðborði þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Dunes Platja er tilvalinn kostur fyrir bæði fjölskyldufólkt, jafnt sem aðra sem leggja áherslu á góða staðsetningu í fríinu. Hægt er að panta á hótelinu gegn aukagjaldi barnastóla fyrir yngstu börnin og handklæði fyrir sundlaugina og ströndina.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 60 km. - 50 mínútna akstur.
- Strönd: Rétt hjá strönd
- Miðbær: 300 m.
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Bar
- Gufubað
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
- Íbúðir: Gegn gjaldi
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Kaffivél
- Ísskápur
- Verönd/svalir
- Hárþurrka
- Öryggishólf: Gegn gjaldi
Fæði
- Hálft fæði