fbpx Emperador. Gott 4 stjörnu hótel, Við Gran Via. Ódýrt verð í Madrid

Emperador
4 stars

Vefsíða hótels

Hótel Emperador er gott 4 stjörnu hótel, staðsett við Gran Via í hjarta borgarinnar. Hótelið er í göngufæri við Puerta del Sol torgið, úrval veitingastaða, verslana og a.m.k. tveggja H&M verslana. Stór El Corte Ingles verslunarhús eru rétt hjá hótelinu og stutt að ganga að helstu söfnum borgarinnar, Prado, Reina Sofa og Thyssen.
 
Á hótelinu eru 232 tveggja manna herbergi, öllmeð loftkælingu (hita), sjónvarpi með alþjóðlegum rásum, síma, þráðlausri nettengingu gegn gjaldi, smábar, öryggishólfi og hárþurrku á baði sem er með baðkari eða sturtu. Herbergjaþjónusta er í boði.

Sameiginleg aðstaða gesta er mjög góð og komið inn í stóra og glæsilega gestamóttöku með huggulegum píanóbar og lítilli verslun. Á hótelinu er einnig morgunverðarsalur, tækjasalur,  gufubað og snyrtistofa. 

Frábær staðsetning og fyrirtaks aðstaða fyrir hópa.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 15 - 20 mín akstur
  • Miðbær: Í miðborginni
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun