fbpx Estival Torrequebrada, Benalmadena Costa | Vita

Estival Torrequebrada, Benalmadena Costa
4 stars

Vefsíða hótels

Hotel Estival Torrequebrada er reisulegt hótel á glæsilegum útsýnisstað við Miðjarðarhafið. Fjölbreytt afþreying, spilavíti (casino) og stutt í golfið.

Á hótelinu eru 372 herbergi sem skiptast í tveggja manna herbergi, junior svítur og svítur. Herbergin eru snyrtileg og rúmgóð. Þau eru björt og máluð í ljósum litum en húsgögn eru viðarlituð og parket
er á gólfum sem gerir þau klassísk og hlýleg. Öll herbergin hafa svalir með útihúsgögnum þar sem dásamlegt er að sitja og njóta útsýnisins út á hafið. Á öllum herbergjum er loftkæling, internet,
sjónvarp með alþjóðlegum stöðvum, sími, öryggishólf og lítill ísskápur. Baðherbergin eru nútímaleg og afar snyrtileg. Þau eru flísalögð og þar er góð sturta, hárþurrka, stækkunarspegill og helstu snyrtivörur.

Á hótelinu er góð veitingaaðstaða sem er mjög fallega hönnuð og rúmgóð en um leið kósý. Veitingastaðurinn er opinn á morgnana, í hádeginu og á kvöldin. Boðið er upp á fjölbreytta
alþjóðlega rétti, spænska og Miðjarðarhafsrétti á girnilegu og vönduðu hlaðborði þar sem aðeins er notað gæðahráefni. Hægt er að fylgjast með matreiðslufólki að störfum í veitingasalnum.
Í spilavíti hótelsins er svo bar með léttri veitingaaðstöðu þar sem hægt er að panta drykki og veitingar af matseðli.

Hótelgarðurinn er stór og gróinn en þar er tilvalið að slappa af milli pálmatrjánna. Góð aðstaða er til sólbaðsiðkunar á veröndum og í kringum sundlaugarnar sem eru nokkrar í garðinum en
meðal annars er þar sundlaug með skemmtilegu leiksvæði fyrir börnin og rennibrautum. Fjölmargt er hægt að gera sér til afþreyingar á hótelinu. Þar er góð líkamsræktaraðstaða, hægt er að
spila borðtennis, tennis, blak, fótbolta eða körfubolta. Eins eru skemmtilegir golfvellir í grennd við hótelið. Á hótelinu er spilavíti (casino) þar sem er skemmtilegt að eyða kvöldstund,
fá sér ljúffenga drykki og spila póker eða aðra leiki. Á hótelinu er skemmtidagskrá og nokkur skipti í viku eru sýningar á kvöldin.Svo er einnig gott að slaka á við sundlaugina eða inni á
heilsulindinni þar sem er innisundlaug og hægt að skella sér í sánu eða panta nudd.

Í heildina er Estival Torrequebrada einstakt hótel sem hentar öllum þeim ferðamönnum sem vilja blanda saman afslöppun og skemmtilegri afþreyingu í fríinu.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 17 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni
  • Strönd: 200 metrar

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Ísskápur: Lítill
  • Loftkæling: og kynding

Fæði

  • Hálft fæði
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun