fbpx Fontanellas Playa, Playa de Palma | Vita

Fontanellas Playa, Playa de Palma
4 stars

Vefsíða hótels

Gott íbúðahótel við ströndina á Playa de Palma, hentugt fyrir fjölskyldur.

Í íbúðarhótelinu Fontanellas Playa eru 188 herbergi og íbúðir fyrir allt að fjóra, mörg hver með útsýni út á Palma-flóann. Lyfta er í hótelinu. Í íbúðunum eru tvö rúm auk tveggja svefnsófa, loftkæling, sjónvarp, öryggishólf og fullbúið eldhús auk baðherbergis. Svalir eða verönd eru með stólum og borði. 

Veitingastaður sem býður upp á hlaðborð er í hótelinu þar sem boðið er upp á girnilegan morgunverð og glæsilegt kvöldverðarborð með úrvali forrétta, fisk-, kjöt- og grænmetisrétta auk daglegs sérréttar matreiðslumannsins.

Á barnum er hægt að setjast niður í drykk og þar er einnig skemmtidagskrá. 

Við hótel Fontanellas eru tvær útisundlaugar og barnalaug auk sólbaðsaðstöðu með bekkjum og sólhlífum. Inni er heilsulind (spa) með innilaug og þar er hægt að fá nudd. Þar er einnig leikvöllur fyrir börn. Þá má nefna reiðhjólaleigu og leikjaherbergi.

Aðeins eru fáein skref niður á strönd og barir og veitingahús eru allt í kring um hótelið. Þeir sem eru ekki fyrir að dvelja á ströndinni eða á sundlaugarbakkanum þurfa ekki að örvænta, enda eru einungis örfáir kílómetrar til höfuðborgarinnar, Palma.  Dásamleg borg þar sem margt er að sjá, bæði gamalt og nýtt, söfn, og minnismerki, bari og veitingahús að ógleymdum frábærum verslunum, stórum og smáum. Það er auðvelt að gleyma sér í Palma þar sem mannlífið er fjölbreytt og útsýni yfir Palma flóann heillandi.

Ekki má heldur gleyma vatnsskemmtigörðum og golfvöllum en slíkir staðir eru hvergi langt undan á Playa de Palma og iðandi sjósport er við ströndina.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 5 km
  • Strönd: Við ströndina
  • Miðbær: 11 km til Palma
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Íbúðir
  • Lyfta
  • Nettenging: Þráðlaus nettenging gegn gjaldi á sameiginlegum svæðum

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun