fbpx Galini Palace, Kolymbari | Vita

Galini Palace, Kolymbari
4 stars

Vefsíða hótels

CHC Galini Palace er glænýtt og glæsilegt hótel staðsett í Kolymbari sem er í um 25 mínútna akstursfjarlægð frá miðbæ Chania.  Miðbær Platanias er í um 15 mínútna akstursfjarlægð.

Hótelið opnaði árið 2021 og býður upp á mjög góða aðstöðu.
Sundlaug, barnalaug, veitingastaður, bar, sundlaugarbar, leiksvæði fyrir börn, heilsulind og líkamsræktarsalur svo eitthvað sé nefnt.

Herbergin eru innréttuð í ljósum litum og eru búin öllum helstu þægindum, svo sem loftkælingu, litlum ísskáp, Wi-Fi, öryggishólfi, sjónvarpi, síma og rúmgóðum baðherbergjum.

Frítt Wi-Fi er á öllu hótelinu.

„Allt innifalið“ felur í sér morgun- hádegis- og kvöldverð og drykki til kl. 23 á kvöldin.  Morgun- og kvöldverður eru bornir fram á hlaðborði á aðalveitingastað hótelsins, hádegisverður á veitingastað við sundlaugina.
Kolymbari er rólegt þorp við ströndina en þar er að finna bæði verslanir og veitingastaði.  Ágætar almennings samgöngur eru frá Kolymbari til Platanias og Chania.

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 42 km

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Te eða kaffivél
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun