fbpx Garni Giardin

Garni Giardin Boutique
3.5 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Hótel Garni Giardin er fallegt þriggja stjörnu superior hótel sem er staðsett ofarlega í Selva. Það er vel staðsett við eina vinsælustu skíðabrekkuna sem liggur frá stærsta skíðasvæðinu niður í miðbæ.

Aðeins 50 metrar eru frá hótelinu að næstu skíðalyftu og þú getur rennt þér heim að dyrum.
Góð skíðageymsla er fyrir hótelgesti. Fimm mínútna gangur er í miðbæinn, þannig að staðsetningin gerist vart betri.

VITA er með samning um Superior herbergi. Tvíbýli – Superior eru 23 m2  fallega innréttuð og vel búin með síma, 26“sjónvarpi, útvarpi, smábar, nettengingu, hárþurrku, snyrtispegli, sloppum og inniskóm. Á herbergjunum eru svalir.  Þráðlaus gjaldfrjáls nettenging.

Á Garni Giardin er gestamóttaka, morgunverðarsalur og bar. Garni Giardin er með morgunmat innifalinn.

Frír aðgangur er að heilsulindinni þar sem meðal annars er hægt að nota tækjasal, fara í sauna og drekka jurtate. Nuddpottur og einka sauna gegn vægu gjaldi.

*Ath ferðamannaskattur í Selva er ekki innifalinn í verði ferðarinnar, Hann greiðist á hóteli við brottför. Sjá nánar undir hagnýtar upplýsingar. 

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 192 km
  • Frá skíðalyftu: 50 m
  • Frá miðbæ: í göngufæri - 5 mín
  • Veitingastaðir: Í nágrenninu

Aðstaða

  • Nettenging: Þráðlaus nettenging án endurgjalds er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Bar

Vistarverur

  • Herbergi: VITA er með samning um Superior herbergi sem eru 23 m2, fallega innréttuð og vel búin
  • Minibar
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi
  • Hárþurrka

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun