fbpx Garni St. Hubertus, Madonna

Garni St. Hubertus
3 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Garni St. Hubertus er vinalegt, einfalt þriggja stjörnu hótel á frábærum stað í Madonna. Hótelið er í miðbænum og er 50 metra frá skíðalyftu. Allt um kring eru verslanir, kaffihús og veitingastaðir.

Hótelið sjálft er einfalt og komið til ára sinna en á sína fasta viðskiptavini sem hafa komið ár eftir ár og vilja hvergi annars staðar vera. Á hótelinu er hlýleg setustofa og bar og hefur St. Hubertus í gegnum árin verið þekkt fyrir sérlega góðan og vel útilátinn morgunverð.

Herbergi eru lítil og gamaldags, en hrein og snyrtileg. Öll herbergi hótelsins eru með síma, sjónvarpi, öryggishólfi og hárþurrku. Þráðlaus nettenging er í sameiginlegum rýmum og næst oftast uppá herbergi.
Hægt er að panta fjölskylduherbergi. 

Hótelið er rétt hjá 5 Laghi Express skíðalyftunni. Á Hubertus er góður garður og útisundlaug en hún er bara opin yfir sumartímann. Á hótelinu er skíðageymsla, sólarhringsmóttaka, bílastæði og lyfta svo eitthvað sé nefnt.

Hagkvæmur en einfaldur kostur á fínum stað í miðbænum nálægt skíðalyftum. 

Ferðamannaskatturinn í Madonna er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Sjá nánar undir hagnýtar upplýsingar.

 

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 150 km
  • Frá miðbæ: Í miðbænum
  • Frá skíðalyftu: 50 m
  • Veitingastaðir: Í nágrenninu

Aðstaða

  • Nettenging
  • Gestamóttaka
  • Bar

Vistarverur

  • Herbergi: Eins, tveggja og þriggja manna herbergi.
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun