Globo
Vefsíða hótels
Fjögurra stjörnu hótel staðsett í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá miðbænum í Split sem er eins konar blanda af fornminjum frá fyrri tíð og nútímanum eins og við þekkjum í dag, en þarna blasa við fornar byggingar og úrval veitingastaða, verslana ofl. Aðeins 20 mínútna gangur er að fallegri sandströnd þar sem hægt er að njóta sólarinnar og mannlífsins.
Hótelið er ekki stórt en þarna eru 33 rúmgóð teppalögð herbergi og minna innréttingar á hótelherbergi eins og margir þekkja frá norður Ameríku. Öll eru þau með sjónvarpi, síma, loftkælingu, minibar, öryggishólfi, þráðlaust internet og te og kaffivél. Inni á baðherbergjum má finna hárþurrku og helstu snyrtivörur. Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn, herbergisþjónusta er í boði og morgunverðarsalur þar sem morgunverður er reiddur fram af hlaðborði. Kaffihús er við hótelið þar sem hægt er að fá sér hressingu og val um að sitja inni eða úti og njóta þess að horfa á mannlífið
Þetta er vel staðsett hótel, þar sem auðvelt er að komast á milli staða.
Fjarlægðir
- Miðbær: Í göngufæri - 5-10 mínútur
- Veitingastaðir: Allt um kring
- Strönd: Í göngufæri - 20 mínútur
- Flugvöllur: 23,5 km.
Aðstaða
- Bar
- Gestamóttaka
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Kaffivél
- Minibar
- Hárþurrka
Fæði
- Morgunverður