Grand Aston La Habana, Havana
Vefsíða hótels
Grand Aston La Habana hótelið er staðsett í Vedado hverfinu, beint fyrir framan Malecón. Glæsileg og nútímaleg hönnun hótelsins líkir eftir nýjum borgarlífsstíl Karíbahafsins en fellur samt fullkomlega saman við græna rýmið í gróskumiklu þéttbýlinu.
Hótelið er splunkunýtt, staðsett í tveimur 25 hæða byggingum og á því eru 600 glæsileg og björt herbergi, öll með loftkælingu, öryggishólfi, kaffivél, minibar, straujárni, strauborði og hárþurrku. Internet er á almennum svæðum sem kostar 5$ fyrir sólarhringinn. Huggulegur sundlaugargarður er á hótelinu með stórkostlegu útsýni yfir Havana flóann.
Heilsulind hótelsins bíður upp á heitan pott, heilsumeðferðir, líkamsræktaraðstöðu og sauna, allt gegn auka gjaldi. Á hótelinu er flottur "lobby" bar sem bíður upp á úrval kokteila og sælkeraveitingastaður með fjölbreytt úrval rétta.
Fjarlægðir
- Strönd: Við ströndina
- Flugvöllur: 120 km, u.þ.b. 1 klst og 45 mín akstur
- Veitingastaðir: Í göngufæri
- Miðbær: 5 km
Aðstaða
- Sturta
- Sundlaug
- Te eða kaffivél
- Veitingastaður
- Bar
- Baðsloppar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging: Gegn gjaldi
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Kaffivél
- Minibar
- Hárþurrka
- Herbergi
Fæði
- Morgunverður