fbpx Grand Teguise Playa, Costa Teguise | Vita

Grand Teguise Playa, Costa Teguise
4 stars

Vefsíða hótels

Frábært hótel á stórkostlegum stað með beinu aðgengi að El Jablillo-ströndinni fallegu í Costa Teguise. 

Í hótelinu eru 311 herbergi og þrjár svítur. Economy herbergin rúma tvo, með klassískum innréttingum, þau snúa út að götu og hafa engar svalir. Standard og Sea View herbergin eru 30 fermetrar og rúma þrjá. Standard eru á jarðhæðinni og með verönd búna húsgögnum sem snýr að hótelgarðinum en Sea View á öðrum hæðum, með svalir búnar húsgögnum og sjávarsýn. Superior herbergin eru á efstu hæðunum, nýuppgerð, með nútímalegum og stílhreinum innréttingum í hvítum og bláum litum. Svalir búnar húsgögnum og með útsýni yfir Jablillo-ströndina. Alls staðar er loftkæling og upphitun, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, ísskápur og ókeypis internet. Öryggishólf er gegn gjaldi. Á baðherbergjum er ýmist sturta eða baðker, hárþurrka, snyrtispegill og baðvörur. Á Superior herbergjum er aðstaða til að laga kaffi og te.

El Jablillo er hlaðborðsveitingastaður, opinn fyrir morgunverð, hádegis- og kvöldverð. Þar er áherslan á alþjóðlega matargerð í bland við dæmigerða Lanzarote-rétti. Mismunandi þema er eftir kvöldum. Yfir miðjan daginn er hægt að fá heita rétti úti á veröndinni. Einnig er veitingastaður með rétti af matseðli. Á sundlaugarbarnum fást svalandi drykkir og snarl. Í móttökusal hótelsins, sem er hreint stórkostlegur, margra hæða hár með suðrænum gróðri, er einnig fallegur hringlaga bar, sófar og borð. 

Í hótelgarðinum eru þrjár sundlaugar, tvær fyrir fullorðna og er önnur þeirra saltvatnslaug, hituð upp um vetur. Busllaug er fyrir börnin. Sólbekkir og sólhlífar eru í kringum laugarnar og baðhandklæði gegn gjaldi sem endurgreiðist við skil. 
Líkamsræktaraðstaða er í hótelinu og starfsfólk sér um dagskrá fyrir börn og fullorðna frá morgni til kvölds. Á daginn er áherslan á hreyfingu og íþróttir en á kvöldin eru það skemmtanir, karaókí, bingó, lifandi tónlist og diskó.
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er farangursgeymsla, bílaleiga og þvottaþjónusta.  

Staðsetningin gæti ekki verið betri, beint aðgengi er niður á El Jablillo-sandströndina þar sem hægt er að leigja sólbekki, og meðfram strandlengjunni eru skemmtilegir veitingastaðir, barir og verslanir. Vatnasport er vinsælt á svæðinu og stutt er í flottan 18 holu golfvöll. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 15 mín
  • Strönd: Við strönd

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Nettenging: Frítt Wi-Fi

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Ísskápur
  • Hárþurrka
  • Herbergi
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun