fbpx H10 Berlin Ku‘damm | Vita

H10 Berlin Ku‘damm
4 stars

Vefsíða hótels

H10 Berlin Ku‘damm hótelið er fallegt og stílhreint hótel á góðum stað. Byggingin er gamalt skólahúsnæði og stendur virðulega nálægt þessari stóru og vinsælu verslunargötu Kurfürstendamm.
Auðvelt er að komast frá hótelinu og á milli staða, meðal annars inn í miðbæ Berlínar en einnig er margt áhugavert að skoða í nágrenni hótelsins.

Á hótelinu eru 200 herbergi sem skiptast í tveggja til þriggja manna herbergi, tveggja til fjögurra manna íbúðir og svítur. Herbergin eru rúmgóð og björt, en þau eru ljósmáluð, með stórum gluggum sem hleypa mikið af birtu inn.
Einnig eru herbergin hljóðeinangruð. Innréttingar og húsgögn eru í nútímalegum stíl. Gólfin eru parketlögð. Í öllum herbergjum er loftkæling, flatskjársjónvarp, skrifborð, míníbar, frítt Internet og öryggishólf.
Baðherbergin eru flísalögð með sturtu, hárþurrku og helstu snyrtivörum. 

Á hótelinu er veitingastaður þar sem daglega er boðið upp á morgunverð af hlaðborði. Einnig er hægt að fá rétti af matseðli sem sérhæfir sig í alþjóðlegum réttum og Miðjarðarhafsmatargerð.
Einnig er bar á hótelinu. Hægt er að njóta matarins úti á veröndinni þegar veðrið er gott. Úrval af góðum veitingastöðum, börum og kaffihúsum er í næsta nágrenni við hótelið svo það þarf aldrei að leita langt til að fá sér í svanginn. 

Á hótelinu er heilsulind með gufubaði, sánu og hvíldarherbergi. Einnig er aðstaða til líkamsræktar á hótelinu. Þar er því hægt að skella sér á góða æfingu og svo er tilvalið að slaka vel á eftir átökin.

H10 Berlin Ku‘damm hentar öllum sem heimsækja Berlín, hvort sem markmið ferðarinnar er að versla, skoða sig um og upplifa menningu, eyða tíma með fjölskyldunni eða eiga viðskipti.
Staðsetningin er góð og auðvelt að fara frá hótelinu og hvert sem er innan borgarinnar. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 12 km
  • Miðbær: Nálægt Kurfürstendamm
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun