fbpx H10 Suites Lanzarote Gardens, Costa Teguise | Vita

H10 Suites Lanzarote Gardens, Costa Teguise
4 stars

Vefsíða hótels

Mjög gott hótel á besta stað í Costa Teguise. Aðeins 250 metrar niður á Las Cucharas-ströndina sem er þekkt fyrir vatnasport og skemmtilega veitingastaði og verslanir. Hentar barnafjölskyldum vel.

Í samstæðunni eru 240 fjölskyldusvítur og smáhýsi. Fjölskyldusvítur er flestar 34 fermetrar, með svefnherbergi og setustofu, og rúma tvo fullorðna og tvö börn. Nokkrar svítur eru stærri. Eldhúskrókur er með ísskáp, örbylgjuofni, kaffivél, katli og eldhúsáhöldum. Svalir eða verönd með húsgögnum. Daisy-svítan er sérstaklega ætluð barnafjölskyldum, 63 fermetrar, rúmar tvo fullorðna og fjögur börn, og er skreytt til að gleðja börnin. Smáhýsin eru 45 fermetrar og rúma tvo fullorðna og þrjú börn í svefnherbergi og setustofu. Þar er fullbúinn eldhúskrókur með helluborði og borðkrók og tvær verandir búnar húsgögnum. Alls staðar er loftkæling og upphitun, flatskjársjónvarp bæði í svefnherbergi og setustofu. Á baðherbergjum er kraftmikil hárþurrka, snyrtispegill og baðvörur fyrir börn og fullorðna.

Á hlaðborðsveitingastaðnum eru mismunandi áherslur í matargerð eftir kvöldum þar er bakarí og sérstakt svæði fyrir börnin. Á sundlaugarbarnum fást léttir réttir af matseðli yfir daginn og ljúffengir drykkir fram á kvöld undir lifandi tónlist. Á Ríóbarnum er dagskrá með skemmtunum fyrir börn og fullorðna fram á kvöld.

Hótelgarðurinn er fallegur með pálmatrjám og þremur sundlaugum, þar af einni fyrir börnin. Við barnalaugina er sjóræningjaskip með vatnsrennibrautum fyrir þau yngri og leiksvæði með aparólum. Aldursskiptir krakkaklúbbar eru starfræktir fyrir allt frá ungbörnum upp í unglinga. Tennisvöllur er við hótelið og fjölnota íþróttavöllur. Dagskrá er fyrir fullorðna með áherslu á ýmiss konar hreyfingu á morgnana og skemmtun þegar líður á daginn.

Heilsulindin er með gufubað og þar er einnig boðið upp á ýmsar líkams- og snyrtimeðferðir. 
Móttakan er opin allan sólarhringinn. Þar er bíla- og hjólaleiga og hraðbanki. Þvottavélar og þurrkarar með sjálfsafgreiðslu eru aðgengileg gestum. 

Fjölskylduvænt hótel stutt frá Las Cucharas-sandströndinni þar sem hægt er að stunda vatnasport af kappi. Skemmtilegir veitingastaðir og verslanir í næsta nágrenni og sædýrasafn er örstutt frá hótelinu. Strætó stoppar fyrir utan hótelið. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 15 mín
  • Strönd: 5 mín gangur

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Nettenging: Frítt Wi-Fi

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Íbúðir

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun