fbpx H10 White Suites, Boutique Hotel, Playa Blanca | Vita

H10 White Suites, Boutique Hotel, Playa Blanca
4 stars

Vefsíða hótels

Stórgott hótel á besta stað á Playa Blanca. Nokkurra mínútna gangur er niður á Dorada-sandströndina. Hótelið er aðeins ætlað eldri en 18 ára og því fullkomið til slökunar og endurnæringar í einstöku umhverfi.

Byggingar eru í dæmigerðum Kanaríeyjastíl, innréttaðar með spænsk-arabískum blæ. Í hótelinu eru 195 svítur, 38 fermetrar að stærð. Standard svítur rúma allt að þrjá og eru með sér setustofu með svefnsófa, og svölum með húsgögnum, útsýni er ýmist yfir hótelgarðinn eða sundlaugina. Efri hæðir eru aðeins aðgengilegar með tröppum. Innréttingar eru stílhreinar og fallegar. Svíturnar eru búnar öllum nútímaþægindum, loftkælingu á sumrin og upphitun á veturna, Nespresso-vél, flatskjársjónvarpi bæði í svefnherbergi og setustofu og þráðlausri nettengingu, öryggishólf og fylling á smábar er gegn gjaldi. Á baðherbergjum er baðker eða sturta, hárþurrka, snyrtispegill, baðvörur, baðsloppar og inniskór. Superior og Dream White svítur eru tveggja manna og þeim fylgja ýmis fríðindi. Við þær eru ýmist verönd eða svalir búnar húsgögnum, útsýni er yfir sundlaugina.

Bamboo er hlaðborðsveitingastaður þar sem hægt er að fylgjast með kokkunum töfra fram ljúffenga rétti og hægt er njóta matarins úti á verönd. Á sundlaugarbarnum La Chosa fást léttir réttir af matseðli og ljúffengir drykkir. Þar er skemmtidagskrá á kvöldin. Setustofubarinn býður upp á úrval drykkja og á La Haima sem er innréttaður í arabískum stíl fást áfengir drykkir, en einnig te af ýmsum gerðum og vatnspípur. Á tveimur stöðum við sundlaugarnar getur par verið út af fyrir sig, á öðrum yfir daginn en á hinum að kvöldi og rómantískrar kvöldstundar með einkaþjón tiltækan.

Hótelgarðurinn er einstaklega fallegur, þar eru tvær sundlaugar, önnur upphituð um vetur, og nuddpottur, sólbekkir og sólhlífar.

Í heilsulindinni er gufubað og tyrkneskt bað og boðið er upp á andlits- og líkamsmeðferðir. Líkamsræktaraðstaðan er lítil en afar snyrtileg. 
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þvotta- og þurrhreinsiþjónusta er í boði.

Hótelið er á besta stað í Playa Blanca. Nokkurra mínútna gangur er niður á Dorada-sandströndina og miðbærinn er í léttu göngufæri þar sem finna má skemmtilega veitingastaði og verslanir. Fullkomin rómantísk slökun fyrir fullorðna en einnig stutt í vatnasport og ýmsa afþreyingu.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 28 km
  • Strönd: Rétt hjá Dorada sandströndinni
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Íbúðir
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Kaffivél
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Loftkæling: og kynding

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun