fbpx HD Beach Resort & Spa, Costa Teguise | Vita

HD Beach Resort & Spa, Costa Teguise
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilega hannað hótel á besta stað við ströndina í Costa Teguise. Hentar allri fjölskyldunni því að hér er bæði hægt að slaka almennilega á og stunda alls kyns afþreyingu af kappi. 

Hótelið er í þriggja og fjögurra hæða byggingum sem liggja umhverfis sundlaugargarð. Vistarverur eru af ýmsum gerðum, 45 til 55 fermetrar að stærð. Junior svítur eru með rúmi og svefnsófa ætlaðar allt að þremur fullorðnum, svítur með sérherbergi og svefnsófa í stofu, ætlaðar allt að þremur fullorðnum og barni. Einnig eru í boði Emblem junior svítur en þeim fylgir 2 sólbekkir á svölum/verönd, baðsloppar, inniskór, hægt að velja um úrval af koddum, lúxus baðvörur frá Rituals og Nespresso kaffivél. Innréttingar eru stílhreinar, viður ljós og áklæði í dempuðum túrkisbláum lit. Flísar eru á gólfum. Alls staðar er loftkæling, sími, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, ísskápur, kaffivél, brauðrist og ókeypis þráðlaus nettenging. Öryggishólf er gegn gjaldi og hægt er að leigja örbylgjuofn. Alls staðar eru svalir eða verönd búin húsgögnum. Útsýni er ýmist upp til fjalla eða út yfir Atlantshafið. 

Tveir veitingastaðir eru í hótelinu, hlaðborðsveitingastaðurinn La Geria þar sem þemað í matseldinni er misjafnt eftir kvöldum, og Gourmet sem býður rétti af matseðli. Við sundlaugina er snarl- og kokteilbarinn La Graziosa. Mikið er lagt upp úr vandaðri matseld og hægt er að skoða matseðla og allt um innihald réttanna af skjáum eða úr appi hótelsins. Hægt er að fá útbúna nestispakka fyrir skoðunarferðir.

Í hótelgarðinum eru fjórar upphitaðar sundlaugar, þar af tvær ætlaðar börnum, önnur með litlu leiksvæði. Í kringum laugarnar ágætis sólbaðsaðstaða með bekkjum og sólhlífum. 

Mikið er lagt upp úr afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Krakkaklúbbur er starfræktur og starfsfólk heldur úti fjörugri dagskrá frá morgni til kvölds, með sýningum, diskóteki og karókíkvöldum. Við hótelið er strandblakvöllur, tennisvöllur og lítill fótboltavöllur, hjólaleiga og hægt er stunda seglbrettasvif, róa kanó, kafa og stunda annað vatnasport á vegum hótelsins.

Í heilsulindinni er blaut- og þurrgufa, tyrkneskt bað, nuddpottur, hitabekkir og hvíldarhreiður. Líkamsræktaraðstaðan er góð og boðið upp á jóga og fleira. Hér er aldeilis hægt að láta dekra við sig með nudd-, fegrunar- og líkamsmeðferðum af öllu tagi. 
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn, þar er hægt að leigja bíl og í hótelinu er þvottahús.

Glæsilegt hótel við ströndina í Costa Teguise, frábært fyrir alla fjölskylduna. Stutt er í verslanir og veitingastaði einungis 250 metrar að Las Cucharas ströndinni sem er fræg fyrir vatnasport af öllu tagi. Vatnsrennibrautagarðurinn er örstutt frá hótelinu, og einnig flottur golfvöllur. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 20 mín
  • Strönd: Við strönd

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Íbúðir
  • Líkamsrækt
  • Nettenging: Frítt Wi-Fi

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Íbúðir

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun