fbpx Hesperia Granada | Vita

Hesperia Granada
4 stars

Vefsíða hótels

Mjög gott hótel í gullfallegri byggingu á einstökum stað. Stutt frá dómkirkjunni í hjarta gamla bæjarins. Skemmtilegar verslanir og veitingastaðir allt um kring og 25 mínútna gangur að Alhambrahöllinni, örfáar mínútur með almenningssamgöngum. 

Í hótelinu eru 68 tveggja manna fallega innréttuð standard og superior herbergi. Innréttingar eru einstaklega vel heppnuð blanda af klassískum andalúsískum húsgögnum í dökkum við á móti ljósu áklæði og veggjum. Parkett er á gólfum. Alls staðar er flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, sími, straujárn, loftkæling og upphitun, lítill ísskápur, öryggishólf sem rúmar fartölvur og ókeypis þráðlaus nettenging. Á baðherbergjum er baðker með sturtu, góð hárþurrka og baðvörur. Superior herbergi eru stærri og við þau eru svalir með útsýni yfir Gamboatorg.

Morgunverðarhlaðborð með heitum og köldum réttum er alla morgna í veitingasal. Í miðju hótelsins er fallegur innri garður með steindu glerþaki og þar er hægt að njóta ljúffengra drykkja og tapasrétta frá setustofubarnum. 

Móttakan er að sjálfsögðu opin allan sólarhringinn og þar er farangursgeymsla, bílaleiga,  þvotta- og þurrhreinisþjónusta. Einnig er boðið upp á gjaldeyrisskipti og aðstoð við miðakaup og skoðunarferðir. 

Hesperia er þægilegt lítið hótel á frábærum stað í hjarta gamla bæjarins í Granada. Skemmtilegar verslanir og veitingastaðir eru í næstu götum og stutt er í mörg helstu kennileiti borgarinnar. Almenningssamgöngur stoppa 200 metra frá hótelinu og með þeim er hægt að komast á nokkrum mínútum að Alhambrahöllinni en þó má nefna að aðeins tekur 20 til 25 mínútur að ganga að höllinni.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 20 km frá Granada Santa Fe
  • Miðbær: Í hjarta gamla bæjarins
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Hárþurrka
  • Ísskápur: Lítill
  • Verönd/svalir: Við superior herbergin

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun