fbpx HF Fenix Lisboa | Vita

HF Fenix Lisboa
4 stars

Vefsíða hótels

Hotel Fenix Lixboa er fjögurra stjörnu hótel staðsett á góðum stað  í miðbæ borgarinnar, rétt við aðalgötur eins og Avenida da Liberdade og Baixa en þar má finna iðandi mannlíf, úrval verslana og veitingastaða. Metró stoppar einnig rétt frá svo auðvelt er að komast til allra átta. 

Á hótelinu eru 198 herbergi, öll eru þau fallega hönnuð og eru með sjónvarpi, síma, öryggihólfi, þráðlausu interneti, minibar og inná baðherbergjum er ýmist sturta eða baðkar, hárþurrka og helstu snyrtivörur. Inn á flestum herbergjum er afar fallegt útsýni yfir borgina. 

Á hótelinu er einnig móttaka opin allan sólarhringinn, veitingastaður, bar og setustofa. Morgunmatur er reiddur fram af hlaðborði  og hægt er panta herbergisþjónustu. 

Góður kostur fyrir þá sem kjósa góða staðsetningu í þessari frábæru borg.  

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 7,6 km.
  • Miðbær: Rétt hjá

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun