fbpx Hilton Dubai The Walk | Vita

Hilton Dubai The Walk
4 stars

Vefsíða hótels

Frábærlega staðsett fjögurra stjörnu hótel við aðalverslunargötuna Dubai Marina. Ströndin er innan seilingar og því nóg um að vera. 

Þetta stóra og mikla hótel er tengt öðru Hilton systurhóteli og er göngubrú á milli þeirra. Þar er aðgangur að heilsulind fyrir hótelgesti og hinni dásamlegu Marina strönd. Mikið er um að vera á hótelinu og margt í boði á meðan dvöl stendur, eins og tvær sundlaugar, fallegur garður  og óviðjafnanlegt útsýni yfir Ain Dubai frá sumum herbergjum og á þakbarnum þar sem hótelgestir geta notið útsýnisins.  Líkamsræktaraðstaða er einnig á hótelinu og herbergisþjónusta er í boði fyrir gesti. Þegar kemur að mat er úr nóg að velja, en þarna eru 12 veitingastaðir sem bjóða upp á mismunandi gómsæta rétti allt frá þjóðlegum til alþjóðlegra, svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Herbergin eru 362 talsins, rúmgóð og vel búin. Öll eru þau með sjónvarpi, síma, loftkælingu, ísskáp og öryggishólfi. Baðherbergi eru með hárþurrku og helstu snyrtivörum. Njóttu lifandi skemmtunar, þæginda við ströndina og snarls á börum hótelsins. Pure Sky Lounge & Dining býður upp á þakútsýni yfir Persaflóa og Ain Dubai.

Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 6 dirhams á mann á nótt, á hótel Hilton Dubai The Walk.

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 1,5 klst. akstur
  • Strönd: Rétt hjá
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun