fbpx Borges Chiado | Vita

Borges Chiado
3 stars

Vefsíða hótels

Skemmtileg hönnun og frábær staðsetning í Lissabon gera þetta heillandi hótel að áhugaverðum viðkomustað sem mætir kröfum fjölbreyttra hópa ferðamanna sem koma þangað. 

Á hótelinu eru í heildina 96 herbergi af ýmsum stærðum og gerðum. Hægt er að bóka hefðbundin herbergi fyrir tvo til fjóra einstaklinga og svo eru uppfærð herbergi og svítur á hótelinu. Hvert herbergi hefur einstaka framsetningu en í þeim er allt sem þarf fyrir góðan nætursvefn. Frá sumum herbergjum er dásamlegt útsýni yfir borgina. Herbergin eru fjölbreytt þegar kemur að stíl en öll í ljósum tónum, með stóra glugga og með parketi á gólfum. Í öllum herbergjum er frítt internet, loftkæling, öryggishólf, skrifborð og sjónvarp með gervihnattastöðvum. Út frá sumum herbergjum eru svalir með útihúsgögnum. Baðherbergin eru flísalögð en þar eru sturta, hárþurrka og ókeypis snyrtivörur. Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða þar sem hægt er að taka vel á því, þó þú sért í fríi.

Léttur morgunverður er borinn fram í fallegu morgunverðarrými á hótelinu en ekki aðrar máltíðir. Þó er hægt að panta mat upp á herbergið. Umhverfis hótelið er mikið magn af frábærum veitingastöðum sem hægt er að velja um svo það þarf aldrei að leita langt þegar hungrið sverfur að. Hægt er að fá sér drykki á verönd hótelsins en einnig eru skemmtilegir barir í nágrenni við hótelið þar sem er gaman að setjast niður og fá sér drykk í góðra vina hópi.

Hótelið er staðsett í Chiado sem er eitt mest heillandi svæðið í Lissabon, með útsýni yfir Chiado-torgið. Það hefur gríðarlegan karakter, gefur innsýn í raunverulegt borgarlíf þar sem hin gamla saga, menning og byggingarlist mætir hinni nýju í fullkomnu jafnvægi. Því hentar hótelið vel fyrir fjölbreytta ferðamenn, hvort sem þeir eru í viðskiptaferð, í fríi með fjölskyldunni eða í rómantískri ferð með makanum. Hverfið er aðeins í um 30 mínútna fjarlægð frá flugvellinum og mjög nálægt neðanjarðarlestarstöð.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 7.6 km
  • Miðbær: Göngufjarlægð frá Mario Viegas leikhúsinu og Chiado safninu

Aðstaða

  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging
  • Líkamsrækt: Hægt að panta nudd fyrir aukagjald

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Hárþurrka
  • Ísskápur: Lítill

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun