fbpx San Luca, á frábærum stað í Veróna

Hotel San Luca
3 stars

Vefsíða hótels

Þægilegt og fallegt hótel á frábærum stað í hjarta gamla bæjarins. Öll helstu kennileiti, verslunargötur og veitingastaðir í léttu göngufæri. 

Í hótelinu eru um 36 smekklegar vistarverur. Hægt er að velja um einstaklingsherbergi eða herbergi sem rúmar tvo fullorðna eða þrjá með aukarúmi. Innréttingar eru klassískar ítalskar, viður málaður í rjómahvítum lit og áklæði ljóst. Parkett er á gólfum. Að sjálfsögðu eru öll helstu þægindi til staðar, eins og loftkæling og kynding, sími, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, smábar og öryggishólf. Á baðherbergjum er sturta eða baðker, hárþurrka og ókeypis baðvörur. Þráðlaus nettenging er gestum að kostnaðarlausu.  

Morgunverðarhlaðborð er í veitingasal með úrvali kaldra rétta. Enginn veitingastaður er á hótelinu en það ætti ekki að koma að sök þar sem fjöldi góðra staða er í öllum götum í kring. Aftur á móti er upplagt að setjast niður á setustofubarnum með svalandi fordrykk í byrjun kvölds eða í lok vel heppnaðs dags.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er töskugeymsla og boðið upp á þvotta- og þurrhreinsiþjónustu. Starfsfólk aðstoðar við miðakaup og veitir upplýsingar um ferðir og góða veitingastaði í nágrenninu.  

San Luca er á frábærum stað í hjarta gamla bæjarins. Arena-hringleikahúsið, Via Mazzini verslunargatan, öll helstu söfn, kirkjur og kennileiti eru í léttu göngufæri frá hótelinu. Allt um kring eru skemmtilegir litlir veitingastaðir og sérverslanir. Fyrir þá sem hyggjast leigja bíl hefur hótelið yfir að ráða einkabílastæðum, en annars er umferð takmörkuð um gamla bæinn. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 12 km
  • Veitingastaðir: Allt um kring

Aðstaða

  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun