fbpx Iberostar Grand Packard, Havana | Vita

Iberostar Grand Packard, Havana
5 stars

Vefsíða hótels

Iberostar Grand Packard í Havana er staðsett við gamla borgarhlutann við breiðgötuna Paseo del Prado og er með glæsilegu útsýni yfir hafnarmynni borgarinnar.

Michel Regembal, franskur arkitekt hótelsins hefur sett þrjár ofturnútímalegar hæðir ofan á glæsilega framhlið gamla Hotel Biscuit. Hótelið er staðsett við sjávarsíðuna með 321 björtum og fallega innréttuðum herbergjum, öll með loftkælingu, öryggishólfi, litlum ísskáp, fríu interneti og sturtu.

Á sjöttu hæð hótelsins er flott sundlaug með sólbaðsaðstöðu, þaðan er stórkostlegt og víðáttumikið útsýni er yfir Havana flóann. Heilsulind hótelsins bíður upp á margs konar heilsumeðferðir, sauna, nudd og upphitaða sundlaug. Á hótelinu eru fjórir barir og á einum þeirra "Salón Goya" píanó barnum er lifandi tónlist, þar er einnig hægt að fá sér snarl allan sólarhringinn. 5 veitingastaðir eru á hótelinu sem bjóða upp á fjölbreytta matargerð með hráefni í hæsta gæðaflokki.

Njóttu einstakrar þjónustu og uppgötvaðu hvernig tíminn stoppar á götum sögulega miðbæjarins, sem einbeitir sér að nýlenduarkitektúr, fornbílum og áreiðanleika.

 

Fjarlægðir

  • Miðbær: U.þ.b. 5 mín gangur
  • Veitingastaðir: Í göngufæri
  • Flugvöllur: 120 km, u.þ.b. 1 klst og 45 akstur

Aðstaða

  • Sturta
  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gufubað
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun