Iberostar Cristina, Playa de Palma
Vefsíða hótels
Iberostar Christina er eitt besta hótelið á Playa de Palma. Herbergin eru glæsileg og stutt er í strönd og iðandi mannlíf allt um kring.
Iberostar Cristina-hótelið býður upp á 346 vistarverur sem skiptast í fjölskylduherbergi fyrir tvo til fjóra og herbergi sem taka 2 eða 2 fullorðna og eitt barn.
Útsýni er ýmist yfir Palma-flóa, fallegan og gróðursælan sundlaugargarð eða bílastæði og tennisvöll.
Allar vistarverur eru bjartar og smekklega innréttaðar. Fjölskylduherbergin eru búin loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, ísskápi, öryggishólfi og þráðlausu netsambandi (gegn gjaldi). Hárþurrka er á baðherbergi.
Venjuleg herbergi eru ekki með ísskáp en annars búin sömu þægindum og fjölskylduherbergin, að viðbættum smábar. Superior herbergin eru með útsýni yfir garðinn.
Els Molin-veitingastaðurinn í hótelinu býður upp á glæsilegt hlaðborð á morgnana, í hádeginu og á kvöldin og einu sinni í viku eru haldnar veglegar kvöldverðarveislur með dæmigerðum Mallorca-mat, elduðum að hætti eyjarskeggja.
Vinsamlega athugið, á Iberostar hótelunum er krafa um snyrtilegan klæðnað. Ekki er leyfilegt að vera í sundfötum á veitingastöðunum. Á kvöldin í matsal er mælt með að gestir séu til dæmis ekki í stuttbuxum.
Bar, þar sem hægt er að fá fjölbreytt úrval drykkja og kokteila auk rétta af matseðli í hádeginu, er opinn frá kl. 10 á morgnana til miðnættis. Snarlbar fyrir þá gesti sem vilja fá sér bita og drykk án mikillar viðhafnar er opinn fá kl. 1 til 2.30 um miðjan daginn.
Barnaklúbbur er starfræktur í hótelinu þar sem börn 4-12 ára geta buslað í sundlauginni og skemmt sér konunglega undir vökulu auga sérhæfðs starfsfólks.
Iberostar Cristina-hótelið býður gestum upp á góða líkamsræktaraðstöðu og heilsulindarþjónustu með jóga, hugleiðslu, nuddi, sána o.fl.
Alls konar afþreying er í boði, til dæmis sigling á hraðbátum, seglbátum, seglbrettum og sjóþotum og smábílaakstur auk heimsókna í dýragarð, sædýrasafn og vatnsskemmtigarða.
Ýmiss konar hreyfing er möguleg fyrir þá sem vilja halda sér í formi, til dæmis tennis og veggtennis auk þess sem hægt er að skreppa á hestbak, í mini-golf og köfun. Boðið er upp á styttri og lengri hjólreiðaferðir, á eigin spýtur eða með leiðsögn, svo og gönguferðir.
Skammt frá hótelinu eru nokkrir golfvellir þar sem tilvalið er að æfa sveifluna.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 6 km
- Miðbær: 11 km
- Strönd: 100 m
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Bar
- Barnadagskrá
- Barnaleiksvæði
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Íbúðir
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging: Þráðlaus nettenging er á sameiginlegum svæðum og í herbergjum gegn gjaldi
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Verönd/svalir
- Hárþurrka
Fæði
- Allt innifalið
- Hálft fæði