fbpx Iberostar Selection Lanzarote Park | Vita

Iberostar Selection Lanzarote Park
5 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt, lúxushótel við sjóinn á Playa Blanca. Rétt við Flamingo-sandströndina. Afþreying fyrir alla fjölskylduna og sérsvæði fyrir fullorðna.

Það var arkitektinn og listamaðurinn César Manrique sem hafði yfirumsjón með hönnun hótelsins, sem er í þremur nær hringlaga samtengdum byggingum sem minna á skjólveggina utan um vínviðinn sem ræktaður er á eyjunni. 
Í hótelinu eru 388 herbergi og svítur. 30 fermetra herbergin rúma tvo fullorðna og tvö börn, á svefnsófa. Fjölskylduherbergin eru 36 fermetrar og rúma allt að þrjá fullorðna og tvö börn. Herbergin eru fallega innréttuð, innréttingar að mestu hvítar og flísar á gólfum. Alls staðar er loftkæling, sími, 46 tommu flatskjársjónvarp, kaffivél, öryggishólf, straujárn, ókeypis þráðlaus nettenging, og fyllt er á smábar gegn gjaldi. Á baðherbergjum er sturta, hárþurrka, baðvörur, baðsloppar og inniskór. Star Prestige-svæði hótelsins er í byggingunni sem snýr út að Flamingo-ströndinni og er einungis ætlað fullorðnum. Þar er sundlaug og nuddpottur og balíbeddar í kringum laugina, sér veitingastaður, gestamóttaka og bar. Við allar vistarverur er verönd eða svalir með húsgögnum, en útsýni er ýmist yfir sundlaugarnar eða yfir strandlengjuna og hafið.

Tveir veitingastaðir eru á hótelinu, Papagayo hlaðborðsveitingastaðurinn sem er opinn á morgnana, í hádeginu og á kvöldin, og fínni veitingastaður á Star Prestige-svæðinu þar sem áherslan er á matargerðarlist heimamanna og rétti af matseðli. Fjórir barir eru á svæðinu, þar af einn með skipulögðum sýningum og diskóteki á kvöldin. Einnig matarvagn með vöfflum, pylsum, kökum og köldum bjór.

Við hótelið eru fjórar sundlaugar, þar af tvær barnalaugar, með fínustu sólbaðsaðstöðu, sólbekkjum og sólhlífum. Sérstakt leiksvæði er fyrir börnin og vatnsrennibrautir fyrir þau yngri. Krakkaklúbbur er starfræktur og afþreying er einnig í boði fyrir unglingana. Tennisvellir eru við hótelið líkamsræktaraðstaða með hóptímum í boði. Heilsulind er fyrir þá sem þurfa á endurnæringu að halda með nuddlaug, gufubaði, tyrknesku baði og hvíldarhreiðri. Nudd- og slökunar- og snyrtimeðferðir eru í boði.
Sólarhringsmóttaka er í hótelinu, bíla- og hjólaleiga og þvottaþjónusta.

Hótelið er á yndislegum stað, rétt við Flamingo-ströndina á Playa Blanca. Afþreying og afslöppun fyrir alla fjölskylduna og aðeins nokkurra mínútna gangur að skemmtilegum veitingastöðum og verslunum.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 30 km
  • Strönd: Rétt við Flamingo sandströndina
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Kaffivél
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi
  • Loftkæling: og kynding

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun