Iberostar Varadero
Vefsíða hótels
Frábært 5 stjörnu hótel við ströndina í Varadero með öllu inniföldu. Á hótelinu eru 386 rúmgóð herbergi í 11 byggingum sem standa umhverfis fallegan sundlaugagarð. Tripadvisor telur þetta hótel það besta í Varadero.
Öll herbergi eru rúmgóð og með svölum eða palli. Í hverju herbergi er einnig loftræsting, gervihnattasjónvarp, geisladiskaspilari, sími, smábar, te og kaffivél, öryggishólf, straujárn og straubretti og hárblásari á baði.
Í garðinum eru 3 frábærar sundlaugar og sundlaugarbar auk góðrar barnalaugar. Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu sem og sauna og nuddpottur. Á hótelinu er einnig heilsulind sem býður upp á hinar ýmsu snyrti-, vellíðunar- og heilsumeðferðir gegn gjaldi.
Margvísleg afþreying í boði, en þar er hægt að spila borðtennis, tennis, pool, strandblak og körfubolta svo eitthvað sé nefnt. Golfvöllur er í nágrenninu. Auk þess er hægt að stunda ýmsar sjóíþróttir við ströndina.
Á hótelinu eru 4 veitingahús sem bjóða upp á innlenda og alþjóðlega rétti þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. 7 barir eru á hótelinu og margir þeirra bjóða upp lifandi tónlist. Á hótelinu er alltaf eitthvað um að vera bæði fyrir börn og fullorðna. Daglegar skemmtanir og sýningar eru auglýstar í móttöku hótelsins.
Vinsamlega athugið, á Iberostar hótelunum er krafa um snyrtilegan klæðnað. Ekki er leyfilegt að vera í sundfötum á veitingastöðunum. Á kvöldin í matsal er mælt með að gestir séu til dæmis ekki í stuttbuxum.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 15 km
- Miðbær: 18 km
- Veitingastaðir: Á hótelinu
Aðstaða
- Sundlaug
- Skemmtidagskrá
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging: Þráðlaus nettenging gegn gjaldi á sameiginlegum svæðum
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Kaffivél
- Ísskápur
- Minibar
- Hárþurrka
Fæði
- Allt innifalið