fbpx Indigo Dubai Down Town | Vita

Indigo Dubai Down Town
4 stars

Vefsíða hótels

Það má með sanni segja að þetta stórglæsilega fjögurra stjörnu hótel sé eins konar blanda af nútímanum og því sem má helst finna í ævintýraumhverfi þúsund og einni nótt.

Það er afar vel staðsett í hjarta miðbæjar Dubai og er kjörinn staður til að uppgötva borgina frá.  Héðan geta gestir nýtt sér allt það líflega sem borgin hefur upp á að bjóða. Með þægilegri staðsetningu sinni býður hótelið upp á greiðan aðgang að öllu því mest spennandi í Dubai.

Hótelið er með 269 stórglæsileg herbergi og er hönnunin einstök og lífleg með útsýni sem vekur upp öfund. Herbergin eru öll með sjónvarpi, síma, öryggishólfi, hárþurrku og eru baðherbergi ýmist með baðkari eða sturtu.  Góð aðstaða er á hótelinu en þarna er  útisundlaug sem er  25 metra, einnig er líkamsræktarstöð, heilsulind, veitingarstaður, kaffihús og tveir barir ásamt sundlaugarbar.

Útsýnið frá hótelinu er yfir allan sjóndeildarhring borgarinnar og því ógleymanlegt fyrir hótelgesti að horfa yfir borgina á hvaða tíma sólarhringsins sem er.  

Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 6 dirhams á mann á nótt á Indigo Dubai Down Town. 

 

Fjarlægðir

  • Miðbær: Alveg við miðbæ
  • Flugvöllur: 1,5 klst. akstur
  • Veitingastaðir: Allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Gestamóttaka
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Kaffivél: aðstaða til að gera kaffi eða te

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun