fbpx La Barracuda, Torremolinos | Vita

La Barracuda, Torremolinos
3 stars

Vefsíða hótels

La Barracuda er stórt og glæsilegt hótel sem hefur allt sem þarf fyrir gott frí í sólinni. Frábær staðsetning og skemmtilegir afþreyingarmöguleikar.

Á hótelinu eru 234 herbergi sem eru öll reyklaus. Herbergin eru afar fjölbreytt að stærð og gerð en þau skiptast í einstaklingsherbergi, tveggja til þriggja manna herbergi og fjölskylduherbergi og einnig er hægt að bóka þemaherbergi.
 
Herbergin eru fjölbreytt og vel er hugsað um þægindi gesta. Hönnun herbergjanna er í Miðjarðarhafsstíl, viðarhúsgögn, parket á gólfum og veggir yfirleitt ljósmálaðir. Út frá herbergjunum eru svalir með útihúsgögnum. Í öllum herbergjum er loftkæling, frítt internet, sjónvarp með gervihnattarásum og lítill ísskápur, hægt er að leigja ketil í móttöku gegn aukagjaldi. Stórir gluggar með útsýni út á hafið hleypa birtunni inn og eru eins og stór málverk. Baðherbergin eru flísalögð. Á baðherbergjum er baðkar með sturtu og einnig eru þar helstu snyrtivörur.
 
Á hótelinu er morgunverður borinn fram á hlaðborði og sömuleiðis er hlaðborð í boði á kvöldin en þá með alþjóðlegum réttum og Miðjarðarhafsréttum. Í hótelgarðinum er starfræktur bar á sumrin en þar er hægt að fá sér ljúffenga drykki og snarl. Afslappaður bar er í anddyri hótelsins og stór setustofa. Á kvöldin er þar spiluð tónlist, stundum lifandi tónlist en einnig fer þar fram fjölbreytt skemmtidagskrá og ýmsar sýningar eru settar upp í þessu rými.

Hótelgarðurinn er stór, gróinn og rúmgóður með fjölbreyttum möguleikum til afslöppunar og afþreyingar. Hægt er að komast beint úr hótelgarðinum út á göngugötuna og niður á strönd. Sundlaugin er stór og frá henni er fallegt útsýni út á hafið. Á efstu hæð hótelsins er sólbaðsverönd með frábæru útsýni. Tennisvellir eru í garðinum og einnig borðtennis. Á ströndinni og í nágrenni við hótelið eru gríðarmargir möguleikar til útivistar eða vatnaíþrótta.
 
Í heildina er La Barracuda hótelið skemmtilegur kostur fyrir ólíka hópa ferðamanna. Hótelið er staðsett á frábærum stað við ströndina og afar stutt er að fara í bátahöfnina Puerta Marina sem er í Benalmadena.
 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 10 km
  • Strönd: Við strönd
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Herbergi
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi
  • Hárþurrka: Hægt að fá í móttöku
  • Ísskápur: Lítill

Fæði

  • Hálft fæði
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun