fbpx Las Costas, Puerto del Carmen | Vita

Las Costas, Puerto del Carmen
4 stars

Vefsíða hótels

Fallegt og þægilegt hótel við gylltu Los Pocillos sandströndina í Puerto del Carmen. Rólegheit og afslöppun en stutt í verslanir, veitingastaði og alls kyns afþreyingu.

Í hótelinu, sem var allt gert upp árið 2016, eru 187 vistarverur, 30 og 35 fermetra, sem skiptast í tveggja manna herbergi, Junior svítur, fjölskylduherbergi sem rúma tvo fullorðna og tvö börn, í svefnsófa, og herbergi með hjólastólaaðgengi. Hvíti liturinn er áberandi og innréttingar eru stílhreinar, í gráum litum með ljóstúrkisbláum gardínum og púðum. Öll helstu nútímaþægindi eru til staðar, loftkæling á sumrin og upphitun um vetur, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, örbylgjuofn og ókeypis þráðlaust internet. Öryggishólf, sími og baðsloppar eru gegn gjaldi og fyllt er á ísskáp gegn gjaldi. Á baðherbergjum er ýmist baðker eða sturta, hárþurrka og baðvörur. Við allar vistarverur er verönd eða svalir búnar húsgögnum og af mörgum þeirra er fallegt útsýni yfir hafið.

Morgunverður er af hlaðborði í veitingasal og einnig kvöldverður. Við sundlaugina er hægt að setjast niður og seðja hungrið og svala þorstanum yfir daginn.

Hótelgarðurinn er hellulagður og þar eru bæði fullorðins- og barnalaug, báðar hitaðar upp á veturna. Einnig er þar nuddpottur. Ágætis sólbaðsaðstaða er við laugarnar með sólbekkjum og sólhlífum, þó að margir kjósi kannski að skjótast niður á gyllta ströndina og fá sér sundsprett í tærum sjónum. Baðhandklæði fást gegn gjaldi sem er endurgreitt við skil.
Líkamsræktaraðstaða er í hótelinu og hægt er að panta nudd. Leikjasvæði er fyrir börnin og hægt er að skella sér í borðtennis, billjarð eða skvass. 
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er farangursgeymsla og bíla- og hjólaleiga. Þá er á svæðinu þvotta-, þurrhreinsi- og strauþjónusta og einnig sjálfsafgreiðsluþvottavélar og þurrkarar.

Hótelið sjálft er á rólegum stað, en aðeins er nokkurra mínútna gangur í verslanir og veitingastaði. Vatnasport er ekki stundað við Pocillo-ströndina sjálfa en stutt er í aðrar strendur þar sem það stendur til boða og nokkrar mínútur eru með bíl að næsta golfvelli.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 8 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring
  • Strönd: við La Pocillos

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Loftkæling: og kynding

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun