fbpx Las Terrazas de Abama, Guía de Isora | Vita

Las Terrazas de Abama, Guía de Isora
5 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Las Terrazas de Abama er lúxussamstæða í rólegu umhverfi á hinum frábæra Abama-golfvelli í Guía de Isora. Umkringd pálmatrjám og gróðursælum görðum. Veitingastaður, kjörbúð og skutla niður á kyrrláta sandströnd í lítilli vík. 

Íbúðirnar eru frá 87 til 233 fermetrar að stærð, með frá einu og allt að fjórum svefnherbergjum og rúma allt að átta fullorðnum. Innréttingar eru stílhreinar og fallegar, flísar eða marmari á gólfum og stórar mottur.
Eldhús er vel búið, með örbylgjuofni, eldavél, ísskáp, brauðrist, espressovél og öllum tilheyrandi eldhúsáhöldum. Alls staðar er loftkæling, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, straubúnaður og þráðlaus nettenging. Á flestum baðherbergjum er bæði sturta og bað, baðsloppar og baðvörur. Við allar íbúðir er stór verönd með húsgögnum og jafnvel nuddpotti. Útsýni er ýmist yfir hafið, hótelgarðinn eða Teide-tind.

Veitingastaðurinn á hótelinu, Melvin, er ekki af verri endanum enda matreiðslan þar undir handleiðslu Martín Berasategui, sem státar af samtals 10 Michelin-stjörnum á veitingastöðum sínum.
Morgunverður er af hlaðborði en það gæti borgað sig að panta borð fyrir kvöldverð sem er engu líkur.

Hótelgarðurinn er gróðursæll og fallegur og sundlaugarnar eru tvær, með sólbekkjum og sólhlífum í kring og að sjálfsögðu bar sem býður upp á létta rétti, snarl og svalandi drykki. Skutla flytur þá sem það kjósa niður á fallega sandströnd í vík fyrir neðan hótelið. Krakkaklúbbur með fjölbreyttri afþreyingu er fyrir 4 til 14 ára.

Hægt er að panta nudd, einkaþjálfun og snyrtimeðferðir heim í íbúðirnar.
Í hótelinu er kjörbúð með sælkeravörum úr næsta nágrenni og góðu úrvali af víni, einnig þvottaþjónusta og farangursgeymsla. Hótelið býður upp á skipulagðar skoðunarferðir, hjólreiðatúra, siglingar og alls kyns aðra afþreyingu.

Fullkominn staður til að njóta kyrrðar og hvíldar í dásamlegu umhverfi, stunda golf af kappi, hlaða batteríin og næra líka og sál.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 32 km
  • Frá strönd: Skutla flytur gesti á strönd

Aðstaða

  • Nettenging
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Barnadagskrá
  • Bar
  • Veitingastaður

Vistarverur

  • Íbúðir
  • Ísskápur
  • Kaffivél
  • Loftkæling
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun