fbpx Las Vegas, Salou | Vita

Las Vegas, Salou
4 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Hotel Las Vegas er vinsælt hótel á fallegum stað við sjávarsíðuna. Stutt í ströndina, skemmtigarða og góðar samgöngur.

Á hótelinu eru 282 smekklega hönnuð herbergi sem innréttuð eru í einstökum stíl og í góðum gæðum. Herbergin skiptast í einstaklingsherbergi og tveggja til þriggja manna herbergi. Mikið er lagt upp úr þægindum og hönnunin á herbergjum er björt með litríkum tónum. Parket er á gólfum. Öll herbergi hafa loftkælingu, frítt internet og flatskjársjónvarp með gervihnattarásum.  Herbergjunum fylgja svalir eða verönd með útihúsgögnum. Baðherbergin eru með marmaraflísum en þar eru sturta og baðkar, hárþurrka og helstu snyrtivörur.

Á veitingastað hótelsins er boðið upp morgunverð af girnilegu hlaðborði. Á kvöldin eru bornir fram spænskir og alþjóðlegir réttir, einnig af hlaðborði. Á hótelinu eru líka þrír barir, einn þeirra er opinn allan sólarhringinn og þar er hægt að slaka á með ljúffengan og svalandi drykk í hönd. Í grennd við hótelið eru líka margir góðir veitingastaðir og skemmtistaðir. 

Hótelgarðurinn er fallega hannaður með góðri sundlaug og þægilegri aðstöðu til afslöppunar og sólbaðsiðkunar. Hótelið er aðeins í um 100m fjarlægð frá ströndinni svo það er stutt í fjörið við sjóinn. Á hótelinu er fín líkamsræktaraðstaða svo gestir geta tekið vel á því í fríinu, til dæmis með því að taka þátt í skipulögðum tímum. Boðið er upp á skemmtidagskrá í hótelgarðinum. Ýmislegt er í boði fyrir börn sem gerir hótelið mjög fjölskylduvænt. Þar er krakkaklúbbur, leikherbergi og leiksvæði utandyra. Stutt er í skemmtigarða og vatnagarða.

Hotel Las Vegas er góður kostur fyrir fjölbreytta hópa ferðamanna. Góð þjónusta er við gesti og starfsfólk gestamóttökunnar er alltaf tilbúið til að aðstoða við hvaðeina, til dæmis að bóka ferðir eða leigja bíla. Staðsetning er frábær, aðeins nokkrum skrefum frá ströndinni og stutt ganga í miðbæinn.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 135 km
  • Frá strönd: 100 m á strönd
  • Frá strönd: 1,8 km á Cala de la Font ströndina
  • Frá miðbæ: Göngufæri við miðbæ
  • Veitingastaðir: Á hóteli og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Nettenging
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Barnaleiksvæði
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Loftkæling
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Allt innifalið, Hálft fæði, Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun