fbpx Le Royal Méridien Abu Dhabi | Vita

Le Royal Méridien Abu Dhabi
5 stars

Vefsíða hótels

Glæsihótel sem er eitt af aðalkennileitum borgarinnar og var upphaflega hugsað fyrir konungsfjölskylduna í Abu Dhabi. Byggingin er framúrstefnuleg og líkist auga þegar hún sést að ofan.

Le Royal Méridien Abu Dhabi er fimm stjörnu hótel og er staðsett í hjarta verslunarhverfi borgarinnar og í stuttri göngufjarlægð frá  verslunarmiðstöðvum, görðum og glitrandi strandgötunni. Mikið er í boði á hótelinu en þarna eru fimm fjölbreyttir og góðir veitingarstaðir, ásamt eina leyfilega snúningsbar borgarinnar. Þar er  stórkostlegt 360 gráðu útsýni yfir Abú Dhabí. Inni – og útisundlaug eru á hótelinu ásamt líkamsrækt, heilsulind með gufu – og eimbaði. 

Herbergin eru samtals 276, öll eru þau fallega innréttuð með sjónvarpi, síma, öryggishólfi, hárþurrku og þráðlausu interneti svo eitthvað sé nefnt. 

Upplifðu þægindi, fágun og eftirminnilegar dvöl í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á Le Royal Méridien Abu Dhabi

Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 5 dirhams á mann á nótt á hótel Le Royal Méridien Abu Dhabi.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 2,5 tímar
  • Veitingastaðir: Allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun