fbpx Lito Beach, Gerani | Vita

Lito Beach, Gerani
3 stars

Vefsíða hótels

Lito beach er hótel og íbúðahótel sem er staðsett á ströndinni í Gerani, í um 2,5 km fjarlægð frá Platanias og 15 km frá Chania. Heillandi útsýni út á Miðjarðarhafið, yndislegt veðurfar og allt til alls fyrir gott frí.

Á hótelinu eru 50 stílhrein og hlýlega innréttuð herbergi og íbúðir. Húsgögn eru úr dökkum viði og ljósar flísar eru á gólfum. Hér er um að ræða vistarverur af öllum stærðum og gerðum; tveggja til þriggja manna herbergi, stúdíóíbúðir, eins til tveggja herbergja íbúðir og svítur. Í öllum vistarverum eru loftkæling, internet, sjónvarp, öryggishólf, sími og míníbar ásamt því að allar vistaverur hafa verönd eða svalir. Í íbúðum eru svefnherbergi og setustofur ásamt léttum eldhúsum. Baðherbergin eru flísalögð en þar eru baðkar með sturtu, hárþurrka og helstu snyrtivörur. 

Hótelgarðurinn er fallegur og gróinn en í honum eru útisundlaug, barnasundlaug og góð sólbaðsverönd með sólbekkjum og öllu sem þarf til að slaka á og njóta sólarinnar. Í garðinum er einnig leiksvæði fyrir börnin og bar er við sundlaugina þar sem hægt er að nálgast svalandi drykki, létta rétti eða kaffiveitingar. Á hótelinu er einnig veitingastaður sem býður upp á spennandi Miðjarðarhafsrétti í hádeginu og á kvöldin. Einnig er herbergisþjónusta í boði á hótelinu.

Við hótelið eru frí bílastæði svo tilvalið er að leigja bíl og skoða sig um á eyjunni. Hótelið hentar fjölskyldufólki og öðrum ferðamönnum sem vilja dvelja í fallegu umhverfi, kósý andrúmslofti og fá úrvals þjónustu frá vingjarnlegu starfsfólki.  

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 34 km
  • Strönd: Um 200 m á strönd
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Íbúðir
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Kaffivél
  • Verönd/svalir
  • Loftkæling: og kynding

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun