fbpx Los Jazmines, Torremolinos | Vita

Los Jazmines, Torremolinos
3 stars

Hotel Los Jazmines er staðsett á fallegu svæði við ströndina í Torremolinos. Góður matur, stutt í miðbæinn og frábært útsýni til sjávar!

Á hótelinu eru 113 herbergi sem skiptast í tveggja til þriggja manna herbergi, fjölskylduherbergi og íbúðir. Allar vistarverur eru hlýlegar, innréttingar og húsgögn eru klassísk, hvort sem um er að ræða íbúðir eða herbergi. Veggir eru málaðir í ljósum litum og flísar eru á gólfum svo hönnunin er björt og snyrtileg. Á öllum herbergjum eru loftkæling, sjónvarp, sími, lítill ísskápur og öryggishólf. Sumum þeirra fylgja svalir. Hægt er að tengjast interneti á hótelinu. Í stærri íbúðum er að auki lítið eldhús með því helsta sem þarf til léttrar matargerðar. Baðherbergin eru flísalögð og þar eru baðkar og sturta, hárþurrka og helstu snyrtivörur.

Á hótelinu er veitingastaður þar sem gestir geta notið morgunverðar af girnilegu hlaðborði en einnig er boðið upp á fjölbreytt kvöldverðarhlaðborð með góðu úrvali af Miðjarðarhafsréttum. Á hótelbarnum á efstu hæð hótelsins eru hristir ljúffengir kokteilar sem yndislegt er að sötra í góðum félagsskap og njóta útsýnisins. 

Góð byrjun á deginum er að ganga um stóran og gróðursælan hótelgarðinn og fá sér svo sundsprett til að kæla sig niður í sundlauginni. Sérstök sundlaug er fyrir börn. Í garðinum er góð aðstaða til sólbaðsiðkunar, sólbekkir og sólhlífar. Ýmislegt er hægt að finna sér til afþreyingar á þessum slóðum, til dæmis er hægt að spila tennis í nágrenni hótelsins og svo er alltaf stutt í fjörið á ströndinni. Á hótelinu er sjónvarpsherbergi fyrir þá sem vilja aðeins komast inn úr sólinni. Gestamóttaka hótelsins er opin allan sólarhringinn en þar er hægt að fá aðstoð við að skipuleggja fríið og komast á milli staða. 

Í heildina er Los Jazmines góður kostur fyrir fjölbreytta hópa ferðamanna sem kjósa frábæra staðsetningu fyrir fríið sitt í sólinni!

Fjarlægðir

  • Strönd: 160 metrar
  • Miðbær: 1 km
  • Flugvöllur: 8,7 km

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Ísskápur
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði
  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun