Madeira Regency Cliff
Vefsíða hótels

Madeira Regency Cliff er gott 4 stjörnu "boutique" hótel með fallegt útsýni til sjávar. Veitingastaðurinn á hótelinu býður upp á morgunverð af hlaðborði og einnig er bar þar sem hægt er að fá drykki til að njóta á veröndinni. Á kvöldin eru í boði á la carte réttir. Í garðinum er sundlaug með sólbekkjum og einnig er innilaug, ásamt heilsulind og tyrknesku baði. Hægt er að fá nudd og aðrar meðferðir gegn gjaldi. Lítil líkamsræktaraðstaða er á hótelinu.
Herbergin eru með svölum með borði og stólum og öll með loftkælingu. Sjónvarp, minibar og kffiaðstaða er á herbergjum. Öryggishólf er gegn gjaldi. Baðherbergi eru með hárþurrku og baðvörum. Frítt þráðlaust internet er um allt hótelið.
Aðstaða
- Þráðlaust net
- Sundlaug
- Þráðlaust net
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Líkamsrækt
- Gufubað
- Veitingastaður
Vistarverur
- Te- eða kaffiaðstaða
- Herbergi
- Minibar
- Loftkæling
- Öryggishólf
- Sjónvarp
- Baðvörur
- Hárþurrka
Fæði
- Morgunverður, Hálft fæði