fbpx Maxime hotel | Vita

Maxime hotel
4 stars

Vefsíða hótels

Þetta nýuppgerða þemahótel er ólíkt öllum öðrum í Lissabon. Byggingin hýsti um áraraðir kabarettklúbb Lady Maxime þar sem settar voru á svið ögrandi danssýningar. Menning horfinna tíma umkringir gesti á þessu nýtískulega hóteli sem stendur í miðborginni, aðeins í um þriggja mínútna göngu frá neðanjarðarlestarstöð.

Á hótelinu eru 75 herbergi sem skiptast í tveggja til þriggja manna herbergi en af þeim eru 5 þemaherbergi. Sum herbergjanna eru samliggjandi. Herbergin eru rúmgóð, djörf og virkilega fallega innréttuð. Þau eru skreytt með myndum og munum í anda burlesque. Parket er á gólfum og góð myrkvunargluggatjöld. Í öllum herbergjum er loftkæling, frítt internet, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, kaffivél, sími, hátalari og skrifborð. Baðherbergin eru flísalögð með góðum sturtum, hárþurrku og helstu snyrtivörum. Hótelið hefur að hluta til haldið upprunalegri hönnun sinni, t.d. hefur loft byggingarinnar fengið að halda sér í upprunalegu horfi sem og kristalsljósakrónurnar.

Á hótelinu er veitingastaður þar sem hægt er að fá sér morgunmat af girnilegu hlaðborði. Á kvöldin er svo hægt að setjast niður yfir góðri máltíð en veitingastaðurinn býður upp á fjölbreytt úrval af portúgölskum sem og alþjóðlegum réttum. Einnig er bar á hótelinu þar sem gestir geta setið utandyra, slakað á og notið kvöldsins með drykk í hönd. Á barnum er upprunalegt barborð og þemamatseðill sem fullkomnar skemmtunina.

Maxime hotel er spennandi valkostur á frábærum stað í hjarta Lissabon. Sérstaklega er hótelið hentugt fyrir pör eða vini sem eru að leita sér að góðu og öðruvísi hóteli í þessar skemmtilegu borg. Að sjálfsögðu eru reglulega haldnar burlesque sýningar á hótelinu en þær eru eitthvað sem gestir mega ekki missa af.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 8 km

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging
  • Skemmtidagskrá: Lifandi tónlist/sýning

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun