fbpx Mediterraneo Bay | Vita

Mediterraneo Bay
4 stars

Vefsíða hótels

Mediterraneo bay hótelið er frábært hótel sem er staðsett á skemmtilegum stað í heillandi og sólríkum bænum Roquetas de mar. 

Á hótelinu eru 362 herbergi sem skiptast í tveggja til þriggja manna herbergi og svítur. Hönnun hótelsins er skemmtileg og hótelið sker sig úr í umhverfinu vegna þess hvað það er litríkt. Herbergin eru snyrtileg og nútímaleg, björt og rúmgóð. Veggir eru málaðir í ljósum litum en mismunandi litir einkenna hvert herbergi. Húsgögn eru úr við og ljósar flísar eru á gólfum. Í öllum herbergjum er loftkæling, internet, sjónvarp og míníbar. Svalir eða verönd fylgja einnig öllum herbergjum. 

Baðherbergin eru flísalögð, þar eru sturta, hárþurrka og helstu snyrtivörur. 

Á hótelinu er morgunverður borinn fram á hlaðborði í notalegu umhverfi. Nokkrir veitingastaðir eru á hótelinu þar sem hægt er að fá Miðjarðarhafsrétti, asíska rétti og alþjóðlega rétti. Einnig er bar í sundlaugargarðinum, skemmtileg krá og flottur kokteilabar.

Hótelgarðurinn er sérstaklega skemmtilegur og stendur alveg við ströndina. Fallegar plöntur og tré gera umhverfið líflegt og sundlaugin er gríðarstór og skemmtilega hönnuð með vatnsrennibrautum fyrir börn og fullorðna. Sérstakt sundlaugarsvæði er fyrir börn. Góð aðstaða er til sólbaðsiðkunar í garðinum. Einnig er heitur pottur í garðinum og svo er hægt að ganga nokkur skref niður á ströndina og slaka á eða skemmta sér í flæðarmálinu. Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu og heilsulind með innisundlaug. Þar er hægt að slaka á og panta sér meðferðir. Krakkaklúbbur er starfræktur á hótelinu og ýmsar skemmtanir í boði. 

Í heildina er Mediterraneo bay gott hótel sem stendur á fallegum stað við sjávarsíðuna. Einungis nokkur skref eru á göngugötuna sem liggur meðfram ströndinni í Roquetas de mar svo fjölmörg veitingahús, kaffihús, barir og skemmtistaðir eru í grenndinni ásamt fjörinu á ströndinni.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 30 mín
  • Strönd: Við strönd
  • Veitingastaðir: Allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Barnasundlaug: Með rennibrautum

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun