fbpx Melia Bilbao

Melia Bilbao
5 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt hótel á frábærum stað í miðborginni, rétt við Nervión-ána og 300 metra frá Guggenheim-safninu. Michelin-veitingastaður og sérhannaðar innréttingar á hótelinu öllu.

Í hótelinu eru 211 rúmgóðar vistarverur, sem skiptast í herbergi sem eru 22 fermetrar hið minnsta og rúma tvo eða þrjá fullorðna, fjölskylduherbergi sem rúma fjóra og svítur. Innréttingar eru í millibrúnum við, leðri og rauðum litum, sérhannaðar, eins og hótelið allt, af arkitektinum Ricardo Legorreta. Teppi eru á gólfum. Stillanleg loftkæling og upphitun er í öllum herbergjum, 3 símar, 37 tommu LCD-sjónvarp, öryggishólf þar sem hægt er að hlaða tölvu og smábar sem fyllt er á gegn gjaldi. Þráðlaus nettenging er gestum að kostnaðarlausu. Á baðherbergjum er bæði baðker og sturta, kraftmikil hárþurrka og snyrtispegill. Útsýni er úr öllum herbergjum, yfir ána eða borgina eða upp til fjalla. 

Morgunverður er af hlaðborði í veitingasal með útsýni yfir Doña Casilda lystigarðinn.  Veitingastaðurinn Aizian er ekki af verri endanum, margverðlaunaður og fékk Michelin-stjörnu árið 2014. Þar er áherslan á baskneska rétti af matseðli og ferskt hráefni. Quatre býður einnig upp á baskneska og spænska matargerð og þar er hægt að borða úti á verönd. Á Q Lounge er tilvalið að slaka á við lifandi tónlist, ljúffenga drykki og úrval tapas- og pintxos-rétta.

Heilsulind er í hótelinu með upphitaðri útisundlaug og gufuböðum. Líkamsræktaraðstaðan er með góðum tækjum og þar er nettenging. Nudd og aðrar líkamsmeðferðir þarf að panta með fyrirvara í gestamóttöku. 

Móttakan er tilkomumikil, með 40 metra lofthæð. Hún er að sjálfsögðu opin allan sólarhringinn og þar er þvotta-, þurrhreinsi og strauþjónusta. 

Meliá Bilbao er mjög gott hótel, rétt við Nervión-ána sem rennur í gegnum borgina og Doña Casilda lystigarðinn og stutt frá Guggenheim-safninu. Hér er hægt að slaka á í heilsulindinni eftir langan dag og njóta kræsinga á Michelin-veitingastað. Auðvelt er að komast með almenningssamgöngum í verslunarhverfið og að öllum helstu söfnum og kennileitum. 

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 13 km
  • Miðbær: Rétt við Nervión ána í miðborginni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun