fbpx Melia Granada, í hjarta borgarinnar.

Melia Granada
4 stars

Vefsíða hótels

Gullfallegt hótel á frábærum stað í hjarta borgarinnar. Stutt er í verslanir, dómkirkjuna, Alhambrahöllina, márahverfið og Vísindagarðinn.

Í hótelinu eru 232 herbergi sem rúma tvo eða þrjá fullorðna eða tvo fullorðna og tvö börn.   Vistarverur eru allar fallega innréttaðar, ýmist á nútímalegan og stílhreinan hátt í dökkum við og hvítum og dempuðum litum með dökkt parkett á gólfum, eða í klassískum stíl með millidökkum við og teppi á gólfum. Að sjálfsögðu eru öll nútímaþægindi til staðar, 37 tommu flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, sími, loftkæling og upphitun og öryggishólf, smábar gegn gjaldi. Á baðherbergjum er hárþurrka og ókeypis baðvörur hið minnsta. Við sum herbergin eru svalir búnar húsgögnum. Þráðlaus nettenging er í öllum vistarverum.

Útsýnið úr mörgum herbergjanna er ólýsanlegt, yfir Alhambrakastala, márahverfið og Sierra Nevada fjallgarðinn.

Orðið ríkulegt nægir eiginlega ekki til að lýsa morgunverðarhlaðborðinu, slíkt er úrval heitra og kaldra rétta og hægt er að fylgjast með kokkunum að störfum. Veitingastaðurinn Garbo by Melia er tileinkaður Gretu Garbo og andrúmsloftið minnir á Hollywood fyrri tíma. Matargerðin er spænsk með nútímatvisti með áherslu á kolagrillað kjöt og fisk og hrísgrjónarétti. Eftir langan dag á ferðinni eða áður en haldið er út á næturlífið er tilvalið að setjast niður á barnum Garbo Gin & Cava þar sem boðið er upp á hamborgara, pitsur og tapasrétti auk úrvals kokteila og gin og tónik.

Líkamsræktaraðstaðan í hótelinu er í minni kantinum en öll tæki eru splunkuný.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er boðið upp á gjaldeyrisskipti, þvotta- og strauþjónustu, bílaleigu og leiðsögn um áhugaverðustu svæði og kennileiti borgarinnar.

Melia Granada er á frábærum stað í hjarta borgarinnar, umkringt verslunargötum með hátískuverslunum, veitingastöðum og iðandi næturlífi. Dómkirkjan og ráðhúsið eru rétt hjá og Alhambrahöll og márahverfið eru í léttu göngufæri. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 19 km.
  • Miðbær: Í miðbænum
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun