Mercure Bilbao
Vefsíða hótels
Mercure Jardines de Albia Bilbao Hotel er fallegt 4 stjörnu hótel á góðum stað í borginni. Um 10 mínútna gangur er að Guggenheim safninu og allt í kringum hótelið er úrval af veitingastöðum og verslunum.
Á hótelinu eru 138 herbergi, öll fallega innréttuð. Þau eru vel útbúin, með sjónvarpi, kaffivél, öryggishólfi, minibar, hárþurrku og loftkælingu/hitun. Frítt þráðlaust internet er um allt hótelið. Boðið er upp á fjölbreyttan morgunverð af hlaðborði. Á annarri hæð hótelsins er bar þar sem hægt er að setjast niður og fá sér drykk og snarl. Lítil líkamsræktaraðstaða er á hótelinu og heilsulind þar sem hægt er að komast í heitan pott, sauna og nudd.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 20 mín
Aðstaða
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Kaffivél
- Minibar
- Hárþurrka
Fæði
- Morgunverður