fbpx Montado Hotel & Golf Resort | Vita

Montado Hotel & Golf Resort
4 stars

Vefsíða hótels

Montado Hotel Golf Resort er með 42 Superior herbergi, öll með svölum og útsýni yfir golfvöllinn. Herbergin eru nýtískulega innréttuð með sjónvarpi, loftkælingu, minibar, internet aðgangi, baðkari og hárþurrku.
Montado er 4* þægilegt hótel við 18 holu golfvöll. það tekur 2 tíma að keyra frá Faro flugvellinum en Montado er aðeins í 50 mínútna fjarlægð frá Lissabon. Veitingastaður hótelsins er með alþjóðlegann mat mjög fjölbreyttan vínlista og er með útsýni yfir vatn staðarins. Öll herbergi hótelsis eru með útsýni yfir golfvöllinn. Herbergin eru stór og falleg, vel búin með flatskjá, miklu úrvali af stöðvum og kaffivél.

Léttar veitingar og mikið úrval af drykkjum er að finna á "The Pitch and Putt barnum. Gestir geta smakkað vín staðarins sem er Muscatel of Port en einnig er hægt að fá kökur og sætabrauð.

Í heilsulind hótelsins er m.a. stór innisundlaug með glergluggum. Hægt er að fá allkonar nudd prógömm í heilsulindinni. Hótelið og golfvöllurinn er við Costa Azul ströndina og er aðeins í 15 mínútna akstursfjarlægð frá Setubal. 

Hótel - Montado Hotel & Golf Resort er með 42 Superior herbergi, öll með svölum og útsýni yfir golfvöllinn. Herbergin eru nýtískulega innréttuð með sjónvarpi, loftkælingu, minibar, internet aðgangi, baðkari og hárþurrku.

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 2 tímar

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun